fbpx
Föstudagur 05.júlí 2024
Fókus

„Hawk Tuah“ Hailey ætlar að nýta sér óvænta frægð vel – Gefur lítið fyrir kjaftasögurnar í sínu fyrsta viðtali

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 2. júlí 2024 22:30

Hailey Welch

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin bandaríska Hailey Welch hefur heldur betur tryllt netverja síðustu vikurnar eftir svar hennar á djamminu um hvað tryllir karlmenn þegar kemur að kynlífi.
Netþátturinn Tim & Dee TV var á rölti um götur Nashville þann 10. júní þegar Welch og vinkona hennar urðu á vegi þeirra.

„Hvað er það sem tryllir karlmenn í rúminu í hvert einasta skipti?“ var Welch spurð. „Þú verður bara að gera hawk tuah og hrækja á typpið á honum,“ svaraði hún skellihlæjandi.

Sjá einnig: Þetta er konan á bak við gríðarlega vinsæla „hawk tuah“ myndbandið

Svarið sló gjörsamlega í gegn meðal netvetja og Welch ætlar ekki að láta sér happ úr hendi sleppa, hún er komin með umboðsmann, byrjuð að selja Hawk Tuah varning, komin með fatalínu og jafnvel fleira. Samkvæmt grein Rolling Stone þann 26. júní var Welch búin að selja vörur fyrir níu milljónir króna á þeim 16 dögum sem voru liðnir frá því að klippan rataði á netið.

Jason Poteete eigandi Fathead Threads sem gerir derhúfurnar og Welch

Netverjar eru eðlilega forvitnir um hver Hailey Welch er og nú hefur hún loksins mætt í sitt fyrsta viðtal.
Welch sem er 21 árs ræddi við Brianna Lapaglia frá Barstool Sports í hlaðvarpinu Plan Bri Uncut í gær, mánudaginn 1. júlí.

Þar gaf hún lítið fyrir kjaftasögur um að hún hafi verið rekin úr kennarastarfi eftir að Hawh Tuah svarið rataði á netið og faðir hennar væri prestur. Hún sagðist vinna í rúmgormaverksmiðju í smábænum sem hún er fædd og uppalin í í Tennessee og hafi einmitt verið að undirbúa sig fyrir vakt klukkan tvö að nóttu þegar hún sá myndbandið af sjálfri sér fara sem eldur í sinu um netmiðla.
Hún segist ekki vera á samfélagsmiðlum þar sem hún hafi eytt reikningum sínum þar fyrir hálfu ári, hún segir það þó í skoðun að hún opni samfélagsmiðla sína aftur.

Núna sé hún að reyna að búa til peninga úr óvæntri frægð sinni, hún hafi þegar selt vörumerkjavöru fyrir tugi þúsunda og er komin með teymi af umboðsmönnum og myndbandsupptökumönnum sem fylgist með öllu sem hún gerir.

Welch rifjar upp kvöldið sem líf hennar breyttist. Segist hún hafa verið með vinum sínum gangandi um götur Nashville eftir CMA tónlistarhátíðina.
„Svo vissi ég ekki fyrr en það var hljóðnemi í andlitinu á mér,“ segir Welch sem þakkar úthverfum persónuleika sínum fyrir ögrandi svar um það sem margir myndu segja að sé einkamál hvers og eins.

„Ég gæti talað við múrvegg ef þú leyfir mér það,“ segir hún hlæjandi.

Welch segist ekkert hafa hugsað meira um málið eftir að hún var búin að svara og bjóst aldrei við að sjá viðtalið. „Jú, ég sá það aftur.“

Welch segir frá því að maðurinn sem gerir derhúfurnar hennar hafi fengið tilboð upp á rúmar 80 þúsund krónur frá karlmanni um að láta Welch hrækja í krukku og senda honum krukkuna.

Welch segir að hún stefni ekki að því að vera þekkt sem Hawh Tuah stelpan alla sína ævi.

Hér má nokkur Meme sem netverjar hafa gert um svar Welch:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Eva var send heim af bráðamóttökunni með laxerolíu – „Það hvarflaði ekki að neinum að ég væri með krabbamein“

Eva var send heim af bráðamóttökunni með laxerolíu – „Það hvarflaði ekki að neinum að ég væri með krabbamein“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einföld leið til að sjá hvort einhver sé undir eða yfir þrítugu

Einföld leið til að sjá hvort einhver sé undir eða yfir þrítugu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Eiginkona Kanye sökuð um að senda gróft klám á ólögráða starfsmenn í sláandi kærumáli – Ásakanir um kynþáttaníð, þrælahald og eitraða menningu

Eiginkona Kanye sökuð um að senda gróft klám á ólögráða starfsmenn í sláandi kærumáli – Ásakanir um kynþáttaníð, þrælahald og eitraða menningu