Hún þakkaði sínum heittelskaða, uppistandaranum Ara Eldjárn, fyrir hjálpina í færslu á Facebook.
„Vá hvað það er gaman að halda upp á afmælið sitt umvafin svona góðu og skemmtilegu fólki. Takk fyrir að halda svona geggjað partý með mér elsku Ari Eldjárn minn. Trúi því varla að við höfum náð að rigga upp salnum á einni klukkustund og færa svo fjörið yfir í bát, með geggjaðri skúðgöngu,“ segir hún.
„Ég er búin að horfa milljón sinnum á fallega lagið sem þú samdir til mín.“
Tinna þakkaði einnig vinum og vandamönnum. „Takk allir sem hjálpuðu til og gerðu kvöldið ógleymanlegt! Takk fyrir komuna, takk fyrir fjörið, takk fyrir samveruna, takk fyrir gjafirnar og takk fyrir mig.“
Sjáðu fleiri myndir í færslunni hér að neðan.
Tinna og Ari hafa verið saman síðan vorið 2023.
Ari hefur um árabil verið einn vinsælasti uppistandari landsins. Hann á tvö börn úr fyrra sambandi.
Tinna opnaði verslunina Hrím árið 2010 með vinkonu sinni. Hún á einnig tvö börn úr fyrra sambandi.
Ari birti fallega færslu á Facebook á afmælisdag Tinnu.