Bandaríska leikkonan Kate Hudson var í viðtali í þættinum „Fylgstu með í beinni“ (e. Watch What Happens Live) á miðvikudaginn. Þar fékk hún spurningu frá aðdáanda um hvort Hudson hefði neytt meðleikara sinn, Matthew McConaughey, til að nota svitalyktareyði þegar þau léku saman í kvikmyndinni Fool´s Gold árið 2008.
„Nei! Hann notar ekki svitalyktareyði,“ svaraði hún. „Og svona í leiðinni, ég nota hann ekki heldur. Við erum náttúruleg, skilurðu?“ sagði hún með glotti.
Aðspurð sagði Hudson McConaughey vera með einkennandi lykt og hún gæti „lyktað af honum úr mílna fjarlægð.“
McConaughey var í viðtali við Playboy árið 2008 vegna myndarinnar og sagði að Hudson hefði sífellt verið að ýja að því að hann þyrfti eitthvað til að hylja líkamslykt sína á tökustað.
„Hún kemur alltaf með saltstein, sem er náttúrulegur svitalyktareyði, og segir: „Viltu vinsamlegast setja þetta á þig?“,“ sagði leikarinn. „Ég notaði hann aldrei. Enginn rakspíri, enginn svitalyktareyði.“
„Konurnar í lífi mínu, þar á meðal móðir mín, hafa allar sagt: „Hey, náttúrulega lyktin þín lyktar, í fyrsta lagi eins og karlmaður og í öðru lagi, eins og þú.“
McConaughey sem er 54 ára opinberaði fyrst andúð sína á svitalyktareyði þegar hann var valinn Kynþokkafyllsti maður heims árið 2005 af tímaritinu People, þar sem hann sagði í viðtali við People að hann hefði ekki notað almenna hreinlætisvöru „í 20 ár“.