Bandaríski leikarinn og tónlistarmaðurinn Jack Black hefur aflýst frekari tónleikum í túr hljómsveitarinnar Tenacious D. Ástæðan eru ummæli sem félagi hans, Kyle Gass, lét falla á tónleikum þeirra í Sydney á sunnudag.
Gass fagnaði 64 ára afmæli þann dag og söng Black afmælissönginn honum til heiðurs, Gass var einnig færð afmæliskaka upp á svið og honum gefin ein ósk.
„Don’t Miss Trump Next Time,“ sagði afmælisbarnið. Það er að sá sem myndi skjóta næst að Donald Trump myndi einfaldlega hitta og drepa forsetaframbjóðandann, en eins og kunnugt er þá varð Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fyrir skotárás á laugardag á fjölmennum kosningafundi í Butler í Pennsylvaníu-fylki.
Sjá einnig: Skotárásin á Trump – Skotmaðurinn tvítugur flokksmaður
Sjá einnig: Klóra sér í kollinum yfir árásarmanni Trump – Hvers vegna reyndi hann að myrða forsetaframbjóðandann?
Í yfirlýsingu sem Black birti á Instagram segir hann að svar Gass hafi komið honum að óvörum. „Ég myndi aldrei láta hatursorðræðu viðgangast eða hvetja til pólitísks ofbeldis af neinum toga. Eftir mikla íhugun hef ég ákveðið að ekki sé viðeigandi að halda tónleikaferðinni áfram og allar frekari áætlanir eru í athugun. Ég er þakklátur aðdáendum fyrir stuðning þeirra og skilning.“
View this post on Instagram