Reykjavík er rík af fallegri veggjalist. Á nokkurs konar fjársjóðskorti er búið að taka saman 160 vegglistaverk í borginni. Styðjast má við kortið ef fólk vill finna og upplifa mörg þessara áhugaverðu og skemmtilegu listaverka.
Vert er að taka fram að listinn er ekki tæmandi og erfitt er að spá fyrir um hve lengi hvert verk mun lifa, en það er hluti af upplifuninni; þetta síbreytilega landslag listarinnar.
Sum þessara verka eru horfin, hafa vikið fyrir framkvæmdum eða öðrum verkum. Einhver verk vantar á kortið og má koma ábendingum um listaverk sem vantar á kortið á veggjalist@gmail.com.
Kortið er hér.
Myndirnar hér eru allar teknar af blaðamanni DV.