Listakonan, rithöfundurinn og fyrirlesarinn Björg Þórhallsdóttir, sem búsett er í Osló í Noregi, mætti nýlega með hóp norskra kvenna í ferð um Austurlandið. Björg rekur fyrirtækið Glede, sem skipuleggur heilsubótarferðir fyrir konur (e. Womens Retreat) og einnig hefur Björg gefið út bækur.
Í Íslandsferð sem farin var dagana 5. – 11. júlí síðastliðinn ferðuðust konurnar um Austurland, ferðast var um Neskaupstað, Barðsnes, Stuðlagil, Borgarfjörð eystri og víðar.
View this post on Instagram
Í stuttu myndbandi sem slegið hefur í gegn á Instagram Bjargar má sjá eina konuna detta. Betur fór en áhorfðist og skellihlær konan eftir volkið. „Skóladæmi um hvernig á að detta með mýkt.“
View this post on Instagram