fbpx
Miðvikudagur 03.júlí 2024
Fókus

Svaf hjá móður vinar síns – Það kom í bakið á honum

Fókus
Mánudaginn 1. júlí 2024 12:20

Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef verið að stunda frábært kynlíf með mömmu vinar míns, en nú vill hún sækja um skilnað frá eiginmanni sínum og hlaupast á brott með mér. Það er eitt vandamál… Ég vil ekki fara með sambandið okkar á næsta stig.“

Svona hefst bréf karlmanns til sambands- og kynlífsráðgjafa The Sun, Deidre.

Maðurinn er 34 ára og mamma vinar hans er 51 árs.

„Ég var hrifinn af henni en með tímanum hef ég áttað mig á því að við eigum enga framtíð saman. Ég vil kynnast konu á mínum aldri sem ég get eignast börn með.

Tilhugsunin um að hafna henni gerir mig stressaðan.

Hún talar endalaust um hvernig hún ætlar að segja eiginmanni sínum og dóttur sinni frá sambandinu okkar, en dóttir hennar var vinkona mín þegar við vorum yngri.“

Maðurinn rakst á mömmuna síðasta vetur.

„Ég átti erfitt með að trúa hversu vel hún leit út miðað við aldur. Ég hitti hana óvænt þegar ég fór á nýtt kaffihús í bænum. Það var frábært að rifja upp gamla tíma og við skiptumst á símanúmerum.

Við mæltum okkur mót stuttu síðar og hún sagði mér að hún væri í kynlífslausu hjónabandi. Eiginmaður hennar er 62 ára.

Hún bauð mér í heimsókn daginn eftir, þegar hann var í vinnunni. Nánast um leið og ég gekk inn um dyrnar byrjuðum við að stunda ótrúlegt kynlíf. Síðan þá höfum við hist reglulega heima hjá henni.

Nú vill hún taka sambandið skrefinu lengra en það er það síðasta sem ég vil. Mér þykir vænt um hana og vil ekki særa hana.“

Ráðgjafinn svarar:

„Talaðu við hana þegar þið eruð bæði róleg og gerðu henni það ljóst að þessu sambandi verði að ljúka, því fyrr því betra.

Þú finnur til með henni en hún þarf að ákveða hvað hún vill gera varðandi hjónaband sitt, án þess að þú sért í myndinni.

Það er bara tímaspursmál hvenær það kemst upp um samband ykkar og það gæti endað illa.

Þú veist svarið, ekki leyfa þessu að halda áfram […] Hún mun verða sár og vonsvikin en hún þarf að ákveða hvað hún vill gera án þess að þú sért að trufla hana.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég er búin að horfa milljón sinnum á fallega lagið sem þú samdir til mín“

„Ég er búin að horfa milljón sinnum á fallega lagið sem þú samdir til mín“
Fókus
Í gær

Eva var send heim af bráðamóttökunni með laxerolíu – „Það hvarflaði ekki að neinum að ég væri með krabbamein“

Eva var send heim af bráðamóttökunni með laxerolíu – „Það hvarflaði ekki að neinum að ég væri með krabbamein“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Skilnaðarlögfræðingur segir að konur séu alveg jafn sekar og karlmenn þegar kemur að þessu

Skilnaðarlögfræðingur segir að konur séu alveg jafn sekar og karlmenn þegar kemur að þessu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Heimsókn Kendall Jenner á Louvre-safnið olli fjaðrafoki – „Þvílík vanvirðing“

Heimsókn Kendall Jenner á Louvre-safnið olli fjaðrafoki – „Þvílík vanvirðing“