Hin breska Ellie Warner hefur svarað einkaþjálfurum, sem smánuðu hana á samfélagsmiðlum fyrir að vera í yfirvigt, fullum hálsi. Warner er þekkt í Bretlandi fyrir reglulega þátttöku sína í sjónvarpsþættinum Gogglebox en í honum er fylgst með venjulegum Bretum bregðast við nýju sjónvarpsefni og segja skoðun sína á því. Framleiðendur þáttanna sækjast sérstaklega eftir þátttakendum sem þykja orðheppnir og hispurslausir. Warner tekur þátt ásamt systur sinni Izzy og á milli þess sem þær fylgjast með nýju sjónvarpsefni gera þær stólpagrín að hversdagslífinu og ekki síst sjálfum sér.
Mirror greinir frá því að Ellie Warner hafi birt mynd af kvöldmatnum sínum á Instagram síðu sinni. Um var að ræða meðal annars franskar kartöflur og djúpsteikta kjúklingabita með miklum osti út á. Sagði hún myndina vera svar til einkaþjálfara sem sífellt væru að senda henni skilaboð og spyrja hvort hún vildi kaupa þjónustu þeirra. Síðan bætti hún við færsluna þremur tjáknum þar sem sjá má kreppta hnefa fyrir utan að löngutöng er lyft upp en það alþjóðlega merki ættu flestir að skilja.
Warner bætti einnig við mynd af ís og ostaköku og sagðist ætla að borða bæði í eftirrétt.
Warner sem er 33 ára gömul er mjög virk á samfélagsmiðlum og er með hálfa milljón fylgjenda á Instagram. Þar birti hún nýlega myndir af ferðalagi sem hún fór í ásamt manni sínum og eins árs gömlum syni þeirra. Hún hefur verið opinská um að hafa lengi glímt við skort á virðingu fyrir eigin líkama en hún segir að það hafi smám saman breyst og hún sé nú mun sáttari í eigin skinni.