Það getur verið spennandi að breyta til í svefnherberginu og prófa nýjar stellingar. Trúboðinn er klassík en það er mjög auðvelt að breyta honum aðeins og auka ánægjuna í leiðinni.
Á ensku kallast þessi stelling „the hook“ en við skulum kalla hana: „Krækjan“ héðan í frá.
Það er gjarnan talað um að þessi stelling láti karlmenn virðast vera stærri að neðan. Það er mjög einföld skýring á því, en karlmaðurinn kemst dýpra og virkar þar af leiðandi „stærri.“
Það er bæði hægt að stunda legganga- og endaþarmsmök í krækjunni.
Ímyndaðu þér trúboðann nema með smá kryddi. Þiggjandinn liggur á bakinu og hvílir fótleggina á öxlum gefandans, þetta er enn betra ef þiggjandinn krækir fótleggjunum.
Auk þess að bjóða upp á meiri unað þá býður stellingin einnig upp á meiri nánd og augnsamband.