Það var ekki beint hegðun hennar sem var að valda þessu fjaðrafoki heldur var það klæðnaður hennar. Sérðu af hverju á myndinni hér að neðan?
Fyrirsætan birti myndir frá kvöldinu og skrifaði með: „Miðnæturferð á Louvre safnið.“
Netverjar tóku strax eftir að hún væri berfætt og höfðu nóg um það að segja.
„Hvar eru skórnir þínir stelpa?“ spurði einn netverji.
„Það sló mig alveg út af laginu að sjá þig berfætta á Louvre,“ sagði annar.
„Þvílík vanvirðing. Enginn ætti að vera berfættur á svona stað, sama á við um veitingastaði.“
Þó gagnrýnisraddirnar hafi verið háværar þá hrósuðu margir henni fyrir fallegar myndir.
„Þú veist hversu öflug þessi kona er þegar hún fær að heimsækja Louvre safnið ein um miðja nótt,“ sagði einn netverji.
„Ég vildi óska þess að ég gæti líka fengið að fara um miðnætti þegar það er ekkert annað fólk,“ sagði annar.
„Mjög fallegar myndir,“ sagði sá þriðji.
Sjáðu allar myndirnar hér að neðan, prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki færsluna.
View this post on Instagram