Kayla Jade er áströlsk háklassa vændiskona sem býður fulla þjónustu, eða full service (FS) eins og hún kallar það. Sem þýðir að hún býður upp á ýmsa kynlífsþjónustu gegn greiðslu.
Hún nýtur mikilla vinsælda á TikTok og leyfir áhugasömum að skyggnast á bak við tjöld vændisþjónustu.
Kayla svaraði spurningu sem hún fær oft: Hvað gerir hún ef viðskiptavinur er virkilega óaðlaðandi?
„Í fullri hreinskilni þá skiptir útlit þeirra mig litlu máli. Ég hef verið með mjög óaðlaðandi kúnna í gegnum árin. Mjög feita gaura og ljóta gaura. En flestir viðskiptavinir mínir eru venjulega útlítandi,“ segir hún.
„En það sem skiptir mig mestu máli er hreinlæti […] mér finnst tilhugsunin um að finna einhvers konar líkamslykt viðurstyggileg […] Ég læt alla viðskiptavini byrja á því að fara í sturtu og horfi á þá í sturtunni og passa að þeir þrífi sig almennilega. Ég er með sápur fyrir þá, munnskol og allt sem þeir þurfa.“
@blueeyedkaylajade Replying to @user3232730423073 I cant stand this 😓 #storytime #whatididtoday #dayinmylife ♬ original sound – blueeyedkaylajade
Kayla hefur þurft að reka karlmann aftur í sturtu. „Hann fór í sturtu, kom inn í herbergi og við byrjuðum að stunda kynlíf en hann lyktaði svo ógeðslega illa að ég sagði honum að fara aftur í sturtu. Honum fannst það í lagi því hann vildi auðvitað að ég væri einnig að skemmta mér.“