Shifty, sem hét réttu nafni Seth Binzer, lést í gær en ekki liggur fyrir hvað var honum að bana.
Shifty hafði glímt við fíkniefnadjöfulinn lengi vel og glímdi hann við heilsubrest af þeim sökum. Var hann til dæmis lagður inn á sjúkrahús árið 2012 þar sem hann honum var haldið sofandi. Shifty komst einnig nokkrum sinnum í kast við lögin vegna fíkniefnamisferlis en hann reyndi oft að verða edrú og gerði það fyrir opnum tjöldum.
Tók hann til dæmis þátt í raunveruleikaþáttunum Celebrity Rehab 1 og 2 og Sober House 1 og 2.
Shifty og Bret Mazur stofnuðu Crazy Town árið 1999 og naut hljómsveitin strax töluverðra vinsælda. Seldist fyrsta plata þeirra, sem kom út árið 2000, í einni og hálfri milljón eintaka. Hljómsveitin lagði upp laupana eftir að plata þeirra sem kom út árið 2002 floppaði.
Shifty lætur eftir sig tvö börn, synina Halo og Gage.