Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, segir ansi margar konur upplifa að áfengi fer ekki eins vel í þær eftir fertugt eins og áður. Áfengi geti í raun gert mörg einkenni breytingaskeiðsins enn verri.
Ragnhildur er sálfræðingur með áherslu á heilsusálfræði og lærður einkaþjálfari. Pistlar hennar um heilsu á mannamáli hafa slegið í gegn um árabil.
„Ansi margar konur upplifa að áfengi fer ekki eins vel í þær eftir fertugt eins og áður.
Mórallinn daginn eftir tjúttið ætlar holdið lifandi að éta.
Litlar í sér með signar axlir og kvíðinn rússar um holdið langt fram eftir viku.
Pervertískar langanir í eitthvað nógu saltað og sveitt og framheilinn skakklappast á hækjum en nær ekki að stöðva þig í að taka betri ákvarðanir í matarvali.
Áfengi og bjór inniheldur oft mikinn sykur og er næstum tvöfalt hitaeiningaríkari en prótín og kolvetni (7 kcal/gramm), en það eru svokallaðar tómar hitaeiningar sem gefa engin orkuefni né vítamín og steinefni.
Þannig getur áfengi stuðlað að enn meiri fitusöfnun ofan á mallakútinn sem oft er byrjaður að myndast á breytó.
Líkamsímyndin sem þegar er niðri í kjallara fær níðingsstöng og niðurrif á Richter skala.
Sem veldur kvíða, depurð, áhyggjum.“
Ragga segir áfengið einnig oft ekki eiga vel við þarmaflóruna sem þegar er með vesen vegna lækkandi estrógens, estradiol og prógesteróns.
„Áfengi er þvagræsandi og þurrkar upp líkamann sem síðan veldur vökvasöfnun og bjúg í varnarmekanisma við öllu þessu pisseríi. Þurr skrokkur hefur áhrif á styrk, kraft og frammistöðu á æfingar.“
Að auki hefur áfengisdrykkja mjög víðtæk áhrif á æfingar eins og Ragga bendir á: „Svefnleysi, timburmenn, mórall, ofþornun, þarmavesen, er ekki kokteill sem dúndrar fítonskrafti í æðar. Að auki er verri glýkógenmyndun og prótínmyndun sem hindrar endurheimt eftir æfingar, og það þýðir að næsta æfing verður líka slöpp.
Áfengi víkkar æðarnar og hitar líkamann eins og áramótabrennu svo hitakófin verða enn öflugri. Áfengi þurrkar upp GABA, taugaboðefnið sem róar taugakerfið og dregur úr kvíða og depurð. Það þýðir enn stærri hnútur í mallakút.“
„Áfengi getur í raun dúndrað mörgum einkennum breytingaskeiðs enn lengra upp í rjáfur og gert þau mun verri:
Hitakóf og svitaköst verða enn verri
Kvíði og depurð aukast
Svefninn fer út á tún með beljunum
Heilaþoka eins og að horfa á heiminn gegnum kókbotna
Endurheimt eftir æfingar versnar og frammistaðan ömurleg
Mataræðið verður sveittmeti
Þarmaflóran verður miður sín
Líkaminn verður skraufþurr“
Ragga segir að það sé þó engin ástæða til „að gerast meðlimur í stúku og hengja sig á snúruna.
En ef áfengi er að hafa neikvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu, hindra þig í að ná árangri í æfingum og mataræði, er óhjálplegt bjargráð við erfiðum tilfinningum, þá er allt í lagi að grufla í naflakuskið og mögulega endurskoða mynstrið.
Drekka minna og/eða sjaldnar.
Það má líka hætta í smá tíma meðan breytó er að ganga yfir og byrja aftur…. framleiðsla áfengis mun örugglega ekki hætta í millitíðinni.“