Belle, 21 árs, segir að þetta sé ekki aðeins hennar skoðun heldur einnig samstarfskvenna hennar.
Hún segir að það sé mýta að klámstjörnur vilji risastóra getnaðarlimi. Belle og vinkonur hennar í bransanum vilja karlmann sem er með typpi rétt fyrir ofan meðalstærð.
„Stærra er ekki betra því svo margar okkar í kláminu erum litlar og nettar, og það er vesen þegar hann er það stór að neðan að við verðum aumar eftir á,“ segir hún við Daily Star.
„Fullkomna stærðin að mínu mati, og allra þeirra kvenna sem ég hef rætt við, er um 16 cm að lengd. Við viljum líka ekki hafa þá of þykka.“
Belle bætir við að þetta eigi ekki bara við karlmenn í klámbransanum. „Við viljum þetta líka á kærustunum okkar.“
Meðalstærð samkvæmt rannsóknum
Læknirinn Anthony Youn nýtur mikilla vinsælda á TikTok og deilir þar ýmsum fróðleik. Hann segir að meðaltyppastærð sé ekki marktæk og útskýrir ástæðuna fyrir því.
Meðallimur í reisn er 13 cm að lengd en læknirinn segir að það sé líklegast ekki rétt og um sé að ræða skekkju í niðurstöðum rannsókna.
„Rannsóknir sýna að meðallimur í reisn sé 13 cm en hin raunverulega meðalstærð er örugglega minni því flestir karlmenn með lítil typpi myndu líklegast ekki taka þátt í svona rannsóknum,“ útskýrir Anthony.