Einkaþjálfari stjarnanna David Higgins afhjúpar sannleikann á bak við hörkukropp leikkonunnar Margot Robbie. Hann vann með leikkonunni fyrir kvikmyndina Barbie, en hann hefur einnig hjálpað öðrum stjörnum að koma sér í form fyrir hlutverk, eins og fyrir spennuþættina The Last of Us og kvikmyndirnar Black Widow og Batman.
Higgins hefur verið tregur að afhjúpa hvaða æfingar og hvaða prógrammi Robbie fylgir, alveg síðan þau byrjuðu fyrst að vinna saman fyrir kvikmyndina The Legend of Tarzan sem kom út árið 2016, en hún sagði í viðtali á sínum tíma að það væri Higgins að þakka að hún væri í „besta formi lífs míns.“
Í nýju viðtali við News.com.au sagði Higgins að fólk ætti ekki að reyna að líkjast stjörnunum.
„Ég held að það sé mikilvægt fyrir fólk að átta sig á að þó við lítum á þessar stjörnur sem fyrirmyndir varðandi heilsu og vellíðan þá er mjög erfitt að ná sama árangri og þær,“ sagði hann.
„Ég vinn með þessu fólki á hverjum degi í marga, marga mánuði. Og þetta er fyrir starf, ekki fyrir sumarfrí eða til frambúðar.“
Hann ítrekaði að það sé mjög erfitt að komast í þetta „draumaform“ og að það liggi mikil vinna þar að baki. Hann benti einnig á að markmið fólks breytist. Þegar hann var tvítugur langaði hann að bæta á sig vöðvum fyrir ströndina. Nú langar hann að vera í góðu formi til að geta leikið við syni sína.