fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

Lifir enn á því að Vigdís hafi veifaði henni

Fókus
Sunnudaginn 19. maí 2024 12:30

Vigdís Finnbogadóttir 1980

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjóla Einarsdóttir þróunar- og stjórnmálafræðingur ritaði fyrr í dag grein á Vísi. Tilgangur greinarinnar er einkum að lýsa yfir stuðningi við forsetaframboð Baldurs Þórhallssonar en athygli vekur einnig einlæg frásögn Fjólu af örsnöggum kynnum hennar við Vigdísi Finnbogadóttur, þegar Vigdís var forseti, sem þó er varla hægt að kalla kynni enda veifaði Vigdís Fjólu en þær ræddu ekki saman. Segist Fjóla lifa enn á þessum atburði þótt yfir 30 séu liðin.

Fjóla segir í greininni að hún sé fyrrverandi nemandi Baldurs í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og hafi numið þau fræði rétt eftir síðustu aldamót. Hún ber Baldri vel söguna, hann hafi reynst henni afar góður kennari, vakið hjá henni áhuga og haft talsverð áhrif á hvaða leið hún fór eftir að náminu lauk.

Fjóla segist ekkert hafa vitað um persónulega hagi Baldurs þegar hún var nemandi hans. Að slíku hafi ekki verið spurt og Baldur hafi ekki tjáð sig um það að fyrra bragði. Hún segist hins vegar án efa hafa orðið ánægð ef hún hefði vitað þá hver maki Baldurs var á þeim tíma og er enn:

„Ef ég hefði vitað á þessum tíma að Felix væri hans maki hefði ég sennilega lýst yfir aðdáun minni á góðu vali þar sem Felix ásamt Gunnari Helga svæfðu ungan son minn öll kvöld þessi ár með Traust og Trygg (á snældum). Sem var dásamlegt fyrir einstæða móður í námi.“

Forsetinn hafi sannarlega áhrif

Fjóla rifjar í lok greinarinnar upp söguna af því þegar Vigdís veifaði henni og segir að það sé til marks um að forsetinn og forsetaembættið hafi sannarlega áhrif og skipti máli. Þetta hafi átt sér stað í hennar heimasveit Hjaltadal í Skagafirði en þar er eins og flestir ættu að vita hinn sögufrægi staður Hólar:

„Árið var 1990, ég var 12 ára og í ein í reiðtúr sem og oft á Heimi mínum, skírður auðvitað í höfuðið á karlakórnum hans pabba, þegar forsetabíllinn keyrir framhjá. Bíllinn hægir á sér og Vigdís skrúfar niður aftur rúðuna og veifar mér. Ég veifaði henni á móti og fannst ég vera fræg fyrir að forseti Íslands hefði veifað mér. Allir sem vildu heyra og hinir líka fengu að heyra söguna þegar Vigdís veifaði mér. Þið sjáið að ég lifi enn á þessu.“

Fjóla bætir við í lokin:

„Eitt lítið augnablik sem forsetinn veitir einhverjum athygli getur varað í lífstíð hjá viðkomandi. Embættið hefur þau áhrif. Munum það.“

Grein Fjólu í heild er hægt að nálgast hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Nadine ekkert sérstaklega sátt við eiginmanninn sem gleymdi hvenær hún á afmæli

Nadine ekkert sérstaklega sátt við eiginmanninn sem gleymdi hvenær hún á afmæli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Ég vissi alltaf að þetta væri ekki eðlilegt, það væri eitthvað að“

„Ég vissi alltaf að þetta væri ekki eðlilegt, það væri eitthvað að“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Jóhannes Þór fékk stórskrýtna sendingu frá Reykjavíkurflugvelli – „Hvar fær maður svona“

Jóhannes Þór fékk stórskrýtna sendingu frá Reykjavíkurflugvelli – „Hvar fær maður svona“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kári skrifar Ragnari skjálfta bréf – „Ef ég man rétt tókst okkur ekki að stöðva stríðið í Víetnam“

Kári skrifar Ragnari skjálfta bréf – „Ef ég man rétt tókst okkur ekki að stöðva stríðið í Víetnam“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ellý segir gjaldþrotin og erfiðleika hafa gert sig sterkari – „ Ég vel að vera ljón og vera sterk“

Ellý segir gjaldþrotin og erfiðleika hafa gert sig sterkari – „ Ég vel að vera ljón og vera sterk“