Bandaríska tímaritið Vogue svipti um helgina hulunni af manninum sem sér um að hjálpa stórstjörnunni Taylor Swift að halda sér í formi. Taylor, sem er 34 ára, er ein allra vinsælasta tónlistarkona heims um þessar mundir.
Einkaþjálfari Swift heitir Kirk Myers og er eigandi líkamsræktarstöðvarinnar Dogpound Gym en aðgangur þar er ekki fyrir hvern sem er. Mánaðarkort í stöðinni getur kostað nokkur þúsund dollara. Kirk kynntist Swift í gegnum sameiginlegan vin þeirra og hefur hann verið einkaþjálfari hennar í tíu ár.
Aðspurður hver rútína Swift er segir Kirk að hún sé „mjög erfið og einhverjir myndu líklega kasta upp eða þurfa að leggjast í gólfið“ eftir að hafa tekið sömu æfingu og hún.
Kirk segir að Swift æfi eins og afreksmanneskja í íþróttum. Þegar koma róleg tímabil, til dæmis þegar hún er ekki á tónleikaferðalagi, fer hún í ræktina sex daga í viku og æfir í tvær klukkustundir í senn. Einblínir hún á styrktaræfingar, sérstaklega fyrir kvið og bak.
Þegar meira er að gera hjá söngkonunni, til dæmis á tónleikaferðalögum, æfir hún að jafnaði tvisvar í viku og þá einbeitir hún sér að einskonar viðhaldi. Gerir hún æfingar til að viðhalda styrk og liðleika.
Mikið hefur mætt á Taylor Swift að undanförnu en hún Eras-tónleikaferðalag hennar hefur tekið mikla orku frá henni. „Ímyndaðu þér að halda þriggja tíma tónleika í þrjá, fjóra daga í röð og svo loksins þegar þú færð frí mætirðu samt í ræktina. Það er Taylor.“