Klámstjarnan Steven Wolfe, sem er kallaður Johnny Sins í bransanum, hvetur karlmenn til að taka skallanum fagnandi. Hann var beðinn um að deila helsta ráðinu sínu á Sexpo-hátíðinni í Ástralíu á dögunum.
Wolfe er ein eftirsóttasta karlkyns klámstjarna heims og er sköllóttur.
„Ég byrjaði að raka höfuðið mitt þegar ég var 23 ára því ég þurfti þess, ekki því mér fannst það flott,“ segir hann.
„Fyrst var ég smá óöruggur en síðan byrjaði ég bara að taka þessu fagnandi.“
Wolfe segir að það eru margir kostir við að vera sköllóttur. „Þú gerir þetta að þínu,“ segir hann.
„Einhverjir af hæfileikaríkustu karlmönnum í heimi eru sköllóttir: The Rock, Jeff Bezos og fjöldi leikara.“
Klámstjarnan elskar að vera sköllóttur. „Þetta er svo miklu auðveldara en að vera með hár, þurfa að fara í klippingu og gera einhverja greiðslu á hverjum degi,“ segir hann.