Kröftug strákastund Krafts fer fram á KEX, þriðjudaginn 12. mars kl. 19.30. Viðburðurinn er haldinn í tilefni af Mottumars sem er nú í fullum gangi og er kvöldið frábær vettvangur fyrir til dæmis herrahópa til að taka sig saman og fara á.
Áhrif krabbameinsgreiningar hjá einum aðila á nærumhverfi viðkomandi eru mikil og því mikilvægt að heyra sögur annara og finna að maður er kannski ekki einn að vesenast með þessa krefjandi reynslu.
Frábær hópur af strákum sem allir hafa reynslu af krabbameini á einn eða annan hátt munu deila reynslu sinni með salnum og er tilgangur viðburðarins að gestir hans geti speglað sig í reynslu þeirra.
Reynsluboltarnir sem munu koma og segja frá eru;
Sóli Hólm, skemmtikraftur, mun segja frá sinni reynslu og sjokkinu við það að greinast með krabbamein og verkefninu að ná heilsu að nýju.
Tómas Þór Þórðarson, íþróttafréttamaður, mun segja frá sinni reynslu hvernig er að vera maki en konan hans greindist með mergæxli fyrir um tveimur árum síðan.
Rafn Heiðdal og Skúli Andrésson munu segja frá því hvernig þeir tækluðu veikindi Rafns og hvernig áhrif það hafði á vinskap þeirra.
Hilmar Orri Jóhannsson mun segja frá því hvernig var að greinast með eistnakrabbamein sem nýbakaður pabbi og í miðju háskólanámi og hvernig vegferðin hefur verið eftir krabbameinsmeðferðina.
Í lok stundarinnar mun Valdimar Guðmundsson stíga á stokk og taka nokkur lög.
Matti Osvald, heilsufræðingur og markþjálfi Ljóssins og Róbert Jóhannsson, umsjónarmaður StrákaKrafts, munu leiða þessa kraftmiklu strákastund.
Það er ókeypis á viðburðinn og fyrir þá sem mæta snemma eru frábær tilboð á Flatus veitingastaðnum á KEX.
Kraftur mælir með að allir karlmenn standi með sínum og mæti á þessa flottu strákastund. Taki með sér vin eða vandamenn því flestir geta speglað sig í einhverjum af þeim reynsluboltum sem munu stíga fram og segja frá sinni reynslu.