Hún birtir iðulega myndbönd á TikTok þar sem hún slær á létta strengi og hikar ekki við að gera grín að sjálfri sér.
Eins og þegar agnarsmáu sundfötin hennar voru skotspónn brandara.
Á dögunum birti hún nýtt myndband þar sem hún sagði: „Tattúveraðar stelpur eru svo [ælukall].“
Í myndbandinu mæmaði hún hljóðbút þar sem má heyra Kim Kardashian svara spurningu hvort hún sé með tattú: „Elskan, myndirðu setja límmiða á stuðarann á Bentley?“
Síðan sýndi Sunneva lítið hjartatattú sem hún er með á handarbakinu.
@sunnevaeinarsI would never.
Þetta virtist ekki falla vel í kramið hjá sumum netverkjum sem töldu Sunnevu vera að gera lítið úr tattúveruðum konum.
„Illa séð,“ sagði netverji.
„Sunneva, sætar stelpur dæma ekki,“ sagði annar.
@sunnevaeinars Replying to @Þ-eva ♬ ewww brother eww – Sofia_AlAfia
Sunneva var fljót að svara fyrir sig en þau sem hafa fylgt henni í einhvern tíma á samfélagsmiðlum vita að hún er með þó nokkur húðflúr víðsvegar um líkamann.
@sunnevaeinars Replying to @þórgunnur💗 ♬ original sound – Sunneva Einars
„Nei, nei, nei. Þú ert að misskilja. Þetta er tattú og ég veit ekki hvað ég er með mörg tattú. I‘m tatted,“ sagði Sunneva í svari við einn netverja.
Þær sem gagnrýndu hana hafa eytt athugasemdum sínum við myndbandið.