fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
Fókus

Eiginkona Kanye West kviknakin undir gegnsæjum regnjakka

Fókus
Miðvikudaginn 7. febrúar 2024 09:25

Skjáskot/Twitter

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástralski arkitektinn Bianca Censori, sem er hvað þekktust fyrir að vera eiginkona rapparans Kanye West, heldur áfram að vekja athygli fyrir fataval sitt, réttara sagt skort á fötum.

Nú virðist hún hafa gengið of langt. Hjónin voru mynduð af paparazzi ljósmyndara á leiðinni í upptökuverið og var Bianca kviknakin undir gegnsæjum regnjakka, það sást greinilega að hún var hvorki klædd í nærbuxur né brjóstarhaldara.

Margir spyrja sig: Hvað er málið? En þetta er ekki í fyrsta skipti sem Bianca vekur athygli fyrir djarfan klæðnað. Í desember mætti hún á viðburð á Art Basel í Miami í gegnsæjum galla og hélt á bangsa. Hún var þó í einhverjum fötum og nærbuxum undir.

Kanye var vel klæddur með svarta grímu fyrir andlitinu.

Netverjar hafa lýst yfir áhyggjum af Biöncu en hegðun hjónanna virðist sífellt furðulegri og furðulegri. Í byrjun árs fór Kanye að birta myndir af eiginkonu sinni sem hafa verið mjög umdeildar.

Kanye birti einnig þessa mynd.

Kanye West endaði með að eyða öllu út af Instagram eftir að hann birti síðustu myndina af Biöncu en hefur nú birt nokkrar nýjar færslur, en engar myndir af henni.

Kanye eyddi öllu af Instagram eftir að hafa fengið rosalega gagnrýni eftir að hafa birt þessa mynd.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Prinsinn orðinn 11 ára – Mamman myndar afmælisdrenginn

Prinsinn orðinn 11 ára – Mamman myndar afmælisdrenginn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jón Viðar og Sigga eiga von á barni

Jón Viðar og Sigga eiga von á barni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Unnur Óla með eigin útgáfu af ,,Hawk Tuah“

Unnur Óla með eigin útgáfu af ,,Hawk Tuah“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heilabrot: Það sem þú sérð fyrst segir til um örlög þín

Heilabrot: Það sem þú sérð fyrst segir til um örlög þín
Fókus
Fyrir 3 dögum

Börnin gátu ekki afborið að horfa upp á Paul Young gifta sig að nýju

Börnin gátu ekki afborið að horfa upp á Paul Young gifta sig að nýju