Bandarísk kona að nafni Heather vekur athygli á áhrifum fíkniefnanotkunar á meðgöngu. Hún birti myndband afsysturdóttur sinni sem fæddist háð fentanýl. Móðir stúlkubarnsins hafði ekki farið í skoðun eða til læknis alla meðgönguna og kostaði fæðingin næstum bæði móður og barn lífið.
Stúlkan, sem Heather kallar litla kraftaverkið þeirra, dó um stund í fæðingunni en læknum tókst að endurlífga hana og segist Heather vera öllu heilbrigðisstarfsfólkinu ævinlega þakklát fyrir aðkomu þeirra að málinu.
Fljótlega eftir fæðingu byrjaði stúlkan, sem fékk nafnið Ava, að sýna merki um fráhvörf. Myndbandið hér að neðan er ekki fyrir viðkvæma, en það sýnir nýfæddu stúlkuna skjálfa af fráhvörfum.
@heathergw1 Welcome home sweet baby! #baby #nicubaby #nasbaby #warriors #grandparentsraisinggrandchildren #opioidawareness #opioidcrisis #loveyou ♬ Don't Give Up On Me – Andy Grammer
Stúlkan er heilbrigð og hamingjusöm í dag hjá ömmu sinni og afa. Hún eyðir líka oft tíma hjá frænku sinni Heather.
@heathergw1 Addiction is an evil monster. Nothing else can explain why a mother would choose getting high over her baby. #nasbaby #addiction #relapse #fentanylkills #grandparentsraisinggrandchildren ♬ I’d Rather Overdose – HONESTAV