Max Pemperton er læknir og pistlahöfundur á Daily Mail og í pistli sem birtist eftir hann í morgun segist hann hafa fengið að reyna þetta á eigin skinni.
Pemperton segir í grein sinni að fyrir nokkrum árum hafi hann orðið fyrir því óláni að fótbrotna illa. Um var að ræða nokkuð erfitt brot og gekkst hann undir fimm aðgerðir í þeirri von að hann gæti gengið sársaukalaust.
„Læknirinn minn lagði til að ég fengi vaxtarhormón í gegnum sprautur. Eftir nokkrar vikur var verkurinn farinn og ég gat gengið án þess að haltra í fyrsta skipti í tvö ár,“ segir hann.
Þetta hafði samt þau áhrif að matarlystin hans jókst um allan helming. „Eftir hverja máltíð var ég enn svangur og gat hámað í mig brauð. Læknirinn sagði að líklega myndi þetta lagast með tímanum en til að ráða betur við hungrið stakk hann upp á því að gefa mér lyf, semaglutide,“ segir Pemperton en það er virka efnið í Ozempic og Wegovy.
„Eftir að hafa tekið lyfið tók ég eftir nokkru óvæntu. Lyfið kemur ekki bara í veg fyrir að þú verður svangur heldur gerir það líka að verkum að sætindi eins og kökur og súkkulaði verða hreinlega óaðlaðandi. Og það átti ekki bara við um mat heldur áfengi líka,“ segir hann.
Pemberton segir að hann drekki alla jafna ekki mikið en fái sér þó stundum léttvín með mat. Eftir að hann byrjaði á lyfinu hafi vínið setið eftir ósnert við matarborðið. „Mig langaði bara ekki neitt í það. Það er erfitt að lýsa þessu en þessi ánægja, þegar maður tekur sopa af góðu víni, var ekki lengur til staðar. Þetta var bara eins og að drekka vatn.“
Pemperton segist þekkja til fólks sem hafi tekið lyfið vegna offitu og þeir segi það sama. Fólk sem áður naut þess að fá sér í glas gerir það ekki lengur og jafnvel fólk sem átti það til að fá sér sterkari efni en áfengi. „Ég þekki til sjúklings sem notaði stundum kókaín og hún segist ekki lengur hafa nokkurn áhuga á að fá sér það.“
Pemperton tekur þó fram að ekki sé leyfilegt að ávísa lyfinu til þeirra sem glíma við fíkn, eða í þeim tilgangi að meðhöndla fíkn. Læknar séu þó forvitnir um þessa hliðarverkun lyfsins og það geti jafnvel nýst fleirum en þeim sem glíma við offitu.
Hér má lesa grein Pempertons í heild sinni.