Stjörnuparið Birgitta Líf Björnsdóttir og Enok Vatnar Jónsson eignuðust son í lok síðustu viku. Drengurinn fæddist þann 8. febrúar síðastliðinn en Birgitta Líf, sem er einn vinsælasti áhrifavaldur landsins, birti fallega mynd af drengnum nú í dag. „Öll heimsins ást,“ sagði hin nýbakaða móðir, augljóslega afar hreykin af drengnum fallega.
Komu drengsins hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu en mikla athygli vakti í þjóðfélaginu þegar parið tilkynnti um kyn erfingjans með því að sleppa bláum reyk úr þyrlu sem flaug ofan við heimili þeirra í Skuggahverfinu.
View this post on Instagram