fbpx
Miðvikudagur 05.mars 2025
Fókus

Þrjár ólíkar en áhugaverðar og skemmtilegar bækur fyrir börn og ungmenni

Fókus
Laugardaginn 14. desember 2024 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bókaútgáfan Kver gefur út þrjár ólíkar en áhugaverðar og skemmtilegar bækur fyrir börn og ungmenni nú fyrir jólin.

Maddý, Tímon og Bleika leynifélagið

Falleg, hugljúf og hughreystandi saga eftir Ilonu Kostecka.

Bókin segir frá systkinunum Maddý og Tímon. Dag einn fara þau með pabba út á róló og hitta þar vini Tímons frá leikskólanum. Alltaf þarf litla systir að hanga í bróður sínum en óvænt finna krakkarnir leynistað og ákveða að stofna sitt eigið leynifélag. Fallega myndlýst og skemmtileg bók fyrir yngsta fólkið okkar. Fyrir börn á leikskólaaldri.

Lockwood og Co. – Öskrin frá stiganum

Spennandi bók eftir Jonathan Stroud.

Draugafaraldur gengur yfir England og einungis börn og unglingar geta kveðið draugana niður. Lockwood, Georg og Lísa vinna saman sem draugabanar og dag einn fá þau magnað verkefni. Tekst þeim að kveða niður svæsinn draugagang á sveitasetrinu Combe Carey og leysa um leið gamalt morðmál? Mjög spennandi og vel skrifaður tryllir sem tekur lesandann með sér í framandi heim. Fyrir lesendur frá 10 ára aldri.

Loki: leiðarvísir fyrir prakkara að heimsyfirráðum

Dillandi skemmtileg bók eftir Louie Stowell.

Þriðja bókin í þessari vinsælu ritröð um Loka sem sendur er til jarðar sem 11 ára strákur til þess að sanna fyrir Óðni að hann geti látið af öllum prakkaraskap. Bókin er í dagbókarformi og mikið myndlýst. Leiftrandi húmor í bland við spennu og sagnaarfurinn lifnar við. Hentar lesendum á aldrinum 8 til 12 ára. Fyrsta bókin um Loka og leiðangur hans kom út hér á landi árið 2022 og bók númer tvö kom út árið 2023.

Bókin Loki: leiðarvísir fyrir prakkara að heimsyfirráðum er í dagbókarstíl. Þar segir frá því þegar Loki er sendur til jarðar í formi 11 ára drengs og er tilgangur ferðarinnar að sanna fyrir Óðni og hinum ásunum að hann geti lært að vera almennilegur og hætt öllum prakkarastrikum. Hann á að halda dagbók og skrá niður hvernig honum gengur en dagbókin er þeim töfrum gædd að hún veit hvenær Loki er að ljúga. Hann kemst því ekki upp með neitt múður! Í för með Loka til jarðar er Þór, þrumuguðinn sjálfur, og á hann að látast vera tvíburabróðir Loka. Hins vegar þolir Loki ekki Þór, sem er alltof góður í íþróttum og vinsæll meðal skólasystkina, að mati Loka. Heimdallur og Hyrrokkin eru send með í leiðangurin og eiga þau að látast vera foreldrar Loka og Þórs. Þau taka hlutverk sitt mjög alvarlega. Heimdallur drekkur í sig uppeldisráð úr ýmsum uppeldisbókum, ekki síst um uppeldi baldinna drengja, og Hyrrokkin leggur áherslu á sameiginlega göngutúra, heilsunnar og fjölskylduheildarinnar vegna, en verður óvart vinsæl sem áhrifavaldur á samfélagsmiðlum. Dagbók Loka byrjar í -3000 dyggðastigum og hann þarf að komast í +3000 dyggðastig, en honum gekk ekki sérstaklega vel í þessu verkefni í fyrstu bókinni og nú fáum við að fylgjast með hvort þetta takist hjá honum í þetta sinn. Kannski ber ekki Loki alltaf ábyrgð á öllu sem úrskeiðis, eða hvað? Loki: leiðarvísir fyrir prakkara er skemmtileg bók með rætur í menningararfinum. Höfundur myndlýsir og er textinn brotinn upp með myndlýsingu sem auðveldar lestur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Þetta er eitt stærsta mál samfélagsins og eitthvað sem við verðum að vinna saman”

„Þetta er eitt stærsta mál samfélagsins og eitthvað sem við verðum að vinna saman”
Fókus
Í gær

Það síðasta sem Adrien Brody gerði áður en hann tók á móti Óskarnum – Netverjar eru ekki hressir

Það síðasta sem Adrien Brody gerði áður en hann tók á móti Óskarnum – Netverjar eru ekki hressir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Frægar tvíburasystur í góðu yfirlæti á Íslandi – Einkaopnun í Sky Lagoon

Frægar tvíburasystur í góðu yfirlæti á Íslandi – Einkaopnun í Sky Lagoon
Fókus
Fyrir 2 dögum

Köttur Þórunnar Antoníu fórst í slysi: „Hjörtu okkar eru brotin“

Köttur Þórunnar Antoníu fórst í slysi: „Hjörtu okkar eru brotin“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Líf Birgittu snerist á hvolf þegar hún varð skyndilega mjög veik: Varð lömuð og gat ekki talað – „Þeir vissu ekkert hvað var að“

Líf Birgittu snerist á hvolf þegar hún varð skyndilega mjög veik: Varð lömuð og gat ekki talað – „Þeir vissu ekkert hvað var að“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hlupu leðurbuxurnar í skápnum?

Hlupu leðurbuxurnar í skápnum?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Opinbera neyðarlínusímtalið þegar Gene Hackman og Betsy Arakawa fundust látin

Opinbera neyðarlínusímtalið þegar Gene Hackman og Betsy Arakawa fundust látin
Fókus
Fyrir 5 dögum

Andlát þeirra nú talið dularfullt – Lík hennar þegar byrjað að rotna og pillur á dreif

Andlát þeirra nú talið dularfullt – Lík hennar þegar byrjað að rotna og pillur á dreif