fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fókus

Anton Bjarki byrjaði að sauma föt 16 ára – Sækir innblástur í íslenska arfleið

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 14. desember 2024 10:29

Anton Bjarki Olsen. (Mynd/Jeffrey Guarino)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fatahönnuðurinn Anton Bjarki Olsen er gestur vikunnar í Fókus. Hann var að gefa út forvorlínu 2025 í byrjun desember sem hefur hlotið góðar viðtökur.

Anton er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV. Horfðu á brot úr þættinum hér að neðan. Þú getur einnig horft á þáttinn í heild sinni hér, eða hlustað á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

video
play-sharp-fill

Anton er 26 ára en hefur verið að sauma föt síðan hann var 16 ára gamall.

„Ég fór í fatahönnun í FB beint eftir grunnskóla. Ég tók tvær annir þar sem ég var að læra að sauma, en námið hentaði mér alveg nógu vel. Ég var að sauma svolítið mikið fyrir utan skóla, kominn svolítið langt fram úr áætlun og fólk var að biðja mig um að sauma á sig og svona, þannig ég ákvað að hætta og byrja að selja föt þá.“

Anton hafði áhuga að læra að sauma fatnað fyrir karlmenn en námskráin bauð ekki upp á það.

„Ég veit ekki hvernig námið er í dag, en á þessum tíma var ég bara að sauma pils, kjóla og svoleiðis,“ segir hann.

@antonbjarkiolsen Behind the scenes of the Spring 2025 collection debut at Erlendur Fashion Week Iceland. After a year of hard work and overcoming personal challenges, this moment at the Whales of Iceland Museum was incredibly emotional. Featuring live music by HINIR, this video captures the essence of a collection close to my heart. #antonbjarkiolsen #Couture #Iceland #runway #bts #MensFashion #fashiontiktok #fyp ♬ original sound – Anton Bjarki Olsen

Afi sem spáir ekki í hvað öðrum finnst

Aðspurður hvaðan hann fékk innblásturinn til að demba sér í fatahönnun segir Anton nokkra ættingja hafa spilað þar stórt hlutverk.

„Ég hef eiginlega alltaf verið að pæla mikið í því hvernig maður klæðir sig og þannig. Afi minn, hann hefur haft mikil áhrif á þetta því hann er rosa stór karakter. Hann er trommari og klæðir sig skemmtilega og er ekkert mikið að pæla hvað öðrum finnst.“

Hönnun Antons Bjarka á Erlendur Fashion Week á Hvalasafninu í september. (Mynd/Jeffrey Guarino)

Forvorlína 2025 (pre spring 2025) Antons hefur fengið góðar viðtökur. Hann forsýndi hana á Erlendur Fashion Week í september. Línan sækir innblástur í íslenska arfleið og einkennist meðal annars af sniðugri notkun á íslenskum efnum eins og fiskileðri og lambaskinni. Hann ræðir nánar um sköpunarferlið í spilaranum hér að ofan.

Brot af forvorlínu 2025. Mynd/Ljós Films
Hönnun Antons Bjarka á Erlendur Fashion Week á Hvalasafninu í september. (Mynd/Jeffrey Guarino)

Greindist með krabbamein

Á meðan hann vann að línunni greindist hann með mjög sjaldgæfa tegund af krabbameini. Hann hafði verið með æxlið um nokkurt skeið en fengið þær fréttir frá læknum að það væri góðkynja og ekkert til að hafa áhyggjur af. Hann vildi seinna láta fjarlægja það því það var farið að valda honum óþægindum, þá kom í ljós að um væri að ræða illkynja æxli sem að meðaltali einn greinist með á þriggja ára fresti á Íslandi.

Hann ræðir það nánar í þættinum sem má horfa á í heild sinni hér að hlusta á Spotify.

Fylgstu með Antoni á Instagram, TikTok og á heimasíðu hans.

@antonbjarkiolsen The Spring 2025 collection is the culmination of a year-long creative process. It draws from an obsession with exquisite fabrics and materials interwoven with patterns and elements reminiscent of Icelandic upbringing. Each piece tells a story of beauty, craftsmanship, and the Icelandic culture that continues to inspire.‎ #antonbjarkiolsen #couture #iceland #campaign #MensFashion #fashiontiktok #fyp ♬ original sound – Anton Bjarki Olsen

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram
Hide picture