fbpx
Miðvikudagur 05.febrúar 2025
Fókus

Flytja til Rómar og selja sögufræga heimilið að Gömlu Borg í Grímsnesi – „Hefur þig alltaf dreymt um að búa í gömlu samkomuhúsi?“

Fókus
Miðvikudaginn 4. desember 2024 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin Þórunn Wolfram Pétursdóttir og Mummi Týr Þórarinsson hafa ákveðið að selja samkomuhúsið Gömlu Borg í Grímsnesi, en þar hafa þau haldið heimili undanfarin ár.

Þórunn er að taka við starfi hjá einni af stofnunum Sameinuðu þjóðanna í byrjun næsta árs og ætla hjónin því að flytja til Rómar en Þórunn greindi frá þessari ákvörðun í Facebook.

„Hefur þig alltaf dreymt um að búa í gömlu samkomuhúsi og sofa á sviði sem Sigur Rós spilaði á í myndinni Heima? Nú er tækifærið. Við erum að flytja erlendis í jan. og Gamla Borg er föl ef um semst.

Húsið er á Borg í Grímsnesi; skráð einbýlishús, 153 fm2 + 12 fm2 geymsluskúr. Þrjú svefnherbergi. Lóðin er um 2400 fm2. Búið er að girða stóran hluta hennar af með þriggja banda timburgirðingu og planta töluvert mikið af birki, gráelri og fleiri tegundum í lóðina.

Húsið er að mestu í upprunalegu ástandi og heldur afar vel utan um íbúa sína – Vala Matt kom í heimsókn nýverið og gerði salnum og sviðinu góð skil í Ísland í dag á Stöð 2

Áhugasamir geta sent Mumma skilaboð eða tölvupóst (tyr@tyr.is). Við þiggjum gjarnan aðstoð við að dreifa þessari færslu sem víðast. “

Hjónin keyptu Gömlu Borg haustið 2020 eftir að Þórunn heillaðist af söluauglýsingu, en þeim hafði báðum dreymt um að búa í gömlu húsi, jafnvel hlöðu sem þau gætu gert upp sem íbúðarhús. Svo birtist þeim þetta sögufræga hús.

Gamla Borg hefur gegnt mörgum hlutverkum gegnum tíðina. Húsið var upphaflega byggt sem þinghús en varð síðar skóli, dansstaður, bílaverkstæði, kaffihús, samkomustaður og loks heimili. Möguleikarnir fyrir nýjan eiganda eru því margir.

Sjá einnig: Ástin blómstrar á Gömlu Borg í Grímsnesi – „Okkar heimur er hér“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ívar: „Það er búið að taka þetta viðtal út af netinu og ég þakka guði fyrir það“

Ívar: „Það er búið að taka þetta viðtal út af netinu og ég þakka guði fyrir það“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fræðsluskot Óla tölvu: Svona breytir gervigreindin frægu málverki

Fræðsluskot Óla tölvu: Svona breytir gervigreindin frægu málverki
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ljósbrot hlaut aðalverðlaunin í Gautaborg

Ljósbrot hlaut aðalverðlaunin í Gautaborg
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – Massaður hálf nakinn lögmaður sem gefur ekkert eftir

Vikan á Instagram – Massaður hálf nakinn lögmaður sem gefur ekkert eftir