Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, segir enga töfralausn til sem losar okkur við aukakílóin. Svarið við því sem virkar er rosalega leiðinlegt og fær engin like á samfélagsmiðlum að hennar sögn.
Ragnhildur er sálfræðingur með áherslu á heilsusálfræði og lærður einkaþjálfari. Pistlar hennar um heilsu á mannamáli hafa slegið í gegn um árabil.
„Oft verðum við pirruð á aukakílóum og viljum losna við þau núna, núna, núna. En líkaminn vill alls ekki svona æsing. Hann er rólegheitagaur. Við erum ennþá með rófubein. Því hraðar sem þyngdin fer af, því hraðar kemur hún til baka. Því hratt þyngdartap hefur yfirleitt í för með sér vöðvarýrnun sem lækkar grunnbrennslu. Lækkaður efnaskiptahraði þýðir að kílóin koma oft jafn hratt til baka og taka yfirleitt nýja vini með sér.
Aðferðirnar sem þarf að beita við hratt þyngdartap eru oft horað kropp í snæðinga og slavískar æfingar. Slíkur darraðardans leiðir af sér óheilbrigt samband við mat, ofþjálfun og síþreytu.
Sem leiðir til að fólk fær viðbjóð á hreyfingu og dettur alveg út. Öfgarnar verða sem sagt frá einni átt í aðra. Hundrað og tíu prósent í mataræði og hreyfingu yfir í núll prósent,“ segir Ragga og heldur áfram:
„Það leiðir til vonleysis, sjálfstraustið fer niður í niðurfallið, pirringurinn útí sjálfið keyrist upp í rjáfur og svekkelsið yfir töpuðum árangri er á Richter skala. Millivegurinn er hinsvegar jafn sexý og gömul Sloggi nærbrók úr Kaupfélaginu á Skagaströnd. En varanlegur árangur kemur í gegnum litlar yfirstíganlegar breytingar á hegðun varðandi mat og æfingar. Að öðlast færni og hæfni í mat og æfingum sem endist út lífið.
Rosa leiðinlegt svar. Mjög ósexý. Fær ekkert áhorf á Tik Tok. Engin læks á Insta. En er rosa auðvelt að halda sig við að eilífu amen.“