Bandaríska tónlistar- og leikkonan Olivia Rodrigo er líklega með furðulegustu spurninguna sem hún spyr karlmenn á fyrsta stefnumóti. Svarið stjórnar því hvort að gaurinn kemst á næsta stefnumót með Rodrigo eða ekki.
Í viðtali við Netflix sem birt var á Instagram 1. nóvember var söngkonan meðal annars spurð um fjölmarga boli sem hún klæddist á sviðinu í Guts World Tour tónleikaferðalagi hennar. Og í kjölfarið svaraði Rodrigo því sem hún spyr karlmann um á fyrsta stefnumótinu þeirra.
View this post on Instagram
„Stærsta rauða flaggið, allt í lagi, þetta er mjög einkennileg og sérstök spurning sem ég spyr stráka á fyrstu stefnumóti. Ég spyr þá alltaf hvort þeir vilji fara út í geim. Og ef hann segir já, þá fer ég ekki á annað stefnumót með honum,“ sagði Rodrigo og glotti. „Ég held bara að ef þú vilt fara út í geim, þá ertu aðeins of fullur af sjálfum þér. Mér finnst það bara skrýtið.“
Rodrigo er sem stendur í sambandi með leikaranum Louis Partridge, en þau opinberuðu samband sitt í desember í fyrra.