Richard fór þar með hlutverk pípulagningamannsins og þúsundþjalasmiðsins Al Borland en aðalhlutverkið í þáttunum var í höndum Tim Allen.
Richard er orðinn 68 ára og er óhætt að segja að hann hafi breyst þó nokkuð síðan þættirnir luku göngu sinni fyrir um aldarfjórðungi og vilja sumir meina að hann hafi aldrei litið betur út.
Richard var í viðtali við New York Post á dögunum þar sem hann segir meðal annars frá róttækum breytingum sem hann og eiginkona hans gerðu á mataræði sínu og varð til þess að hann léttist um 14 kíló. Samanstóð mataræðið af kjöti og grænmeti – og helst engum kolvetnum – í um sex vikur.
Tim Allen og Richard sameinuðust í þáttunum Assembly Required árið 2021 og virðast ekki hafa útilokað að sameinast aftur í Home Improvement.
Tim Allen sagði í fyrra að leikaraliðið úr þáttunum sálugu hafi nokkrum sinnum rætt um að koma saman aftur og endurgera þættina eða búa til aðra þætti byggða á svipaðri hugmynd, svokallaða spin-off seríu.