Hún nýtur mikilla vinsælda á TikTok og leyfir áhugasömum að skyggnast á bak við tjöld vændisþjónustu.
Í nýlegu myndbandi segir Kayla að viðskiptavinur hafi óskað eftir að hún myndi fljúga til Dúbaí og sinna verkefnum þar, hún segir að hann hafi boðið henni „fáránlega háa upphæð“ en hún hafi neitað, þar sem hún er með reglu um að fara ekki í vinnuferðir til Dúbaí.
„Ég hef áður fengið boð um að fara þangað fyrir einhverju síðan,“ segir hún. „Hann sagðist þekkja marga mjög ríka viðskiptamenn í borginni en ég sagði honum að ég myndi aldrei fara í vinnuferð þangað, sama hvað þeir myndu bjóða mér mikið.“
Kayla segir að hún hafi ekkert heyrt í honum eftir þetta en að hann hafi fundið einhverjar aðrar stelpur í staðinn.
„Hann sagði ekki hvað þessir ríku viðskiptamenn voru að leitast eftir en sagði að þær sem myndu samþykkja boðið myndu fá mjög vel borgað, flug á fyrsta farrými og mjög dýrar gjafir. Hann nefndi samt við mig að því lengra sem ég væri tilbúin að ganga, því betur fengi ég borgað.“
Hún segir hann hafa gefið í skyn að eitthvað gróft myndi eiga sér stað og nefndi sérstaklega myndband sem var á dreifingu fyrir einhverju síðan þar sem milljarðarmæringur var að hafa hægðir á konu.
Kayla segir að það séu ýmsar ástæður fyrir því að hún myndi aldrei fara í vinnuferð til Dúbaí.
„Ég væri hrædd um að komast ekki burt, að einhver myndi taka vegabréfið mitt. Kynlífsmansal er mjög stórt vandamál þarna og þú hefur enga stjórn í þessum aðstæðum. Og ef þú leitar til yfirvalda þarna, heldurðu að þau muni hjálpa? Þau líta ekki á þessa glæpi með alvarlegum augum,“ segir hún.
„Ég er mjög hissa að konur séu enn að fara þangað til að vinna eftir allar sögurnar sem við höfum heyrt.“
@blueeyedkaylajade Do I go #storytime #whatididtoday ♬ original sound – blueeyedkaylajade