Raunveruleikastjarnan Francesca Farago og leikarinn Jesse Sullivan eignuðust tvíbura þann 11. nóvember síðastliðinn.
Börnin komu eftir bráðakeisara, Francesca var gengin 36 vikur og fimm daga.
Parið, sem nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum, greindi frá gleðitíðindunum á Instagram og opinberaði nöfn tvíburana. Það mætti segja að nöfnin séu heldur óhefðbundin. Stúlkan fékk nafnið Poetry Lucia og drengurinn Locket Romance.
Prófaðu að endurhlaða síðuna ef þú sérð ekki færsluna hér að neðan.