Ozempic var þróað sem lyf í baráttu gegn sykursýki en hefur reynst byltingarkennt sem megrunarlyf. Eins og með önnur lyf eru aukaverkanir af notkun Ozempic, eins og flökurleiki, uppköst og hægðatregða. Einnig hafa karlmenn greint frá erfiðleikum við að fá – og viðhalda – reisn.
Sjá einnig: Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“
Dr. Jonathan Kaplan er lýtalæknir í San Francisco í Bandaríkjunum. „Þetta er kannski umdeilt en rannsóknir hafa sýnt að þegar þú hættir á Ozempic þá áttu eftir að þyngjast aftur,“ segir hann og bætir við að sama eigi við svipuð þyngdarstjórnunarlyf.
@realdrbaeLets get honest about gaining weight after going off Ozempic and Mounjaro.
Margir sjúklinga Kaplan eru á Ozempic. „Eitt af því sem ég og aðrir læknar höfum tekið eftir hjá sjúklingum okkar er að þegar sjúklingur nær þyngdarmarkmiði sínu og hættir á lyfinu, þá þyngist hann hægt og rólega aftur. Þó svo að hann sé að fylgja strangri matar- og hreyfingaráætlun.“
Kaplan sagði að svarið væri að vera á lyfjunum alla ævi.
„Þú þarft ekki að taka hámarksskammt en ein til tvær sprautur á mánuði er nóg til að viðhalda þyngdartapinu.
Sjá einnig: Sannleikurinn um Ozempic: Sjúklingur fer yfir kosti og galla lyfsins