fbpx
Miðvikudagur 09.október 2024
Fókus

Sigurður prófaði að gefa dóttur sinni umdeilt lyf sem breytti öllu – „Það er beinlínis rangt að halda þessu frá fólki“

Fókus
Miðvikudaginn 9. október 2024 11:45

Sigurður Hólmar Jóhannesson Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Hólmar Jóhannesson segir líf dóttur sinnar hafa tekið stakkaskiptum eftir að hún fór að nota CBD olíu. Sigurður, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segist seg­ist lært að lifa í meira æðruleysi eft­ir að Sunna dótt­ir hans greind­ist með afar sjald­gæf­an tauga­sjúk­dóm.

„Þegar maður á börn, þá gerir maður einfaldlega allt fyrir börnin sín. Síðan hún greindist með þennan sjúkdóm fyrir 18 árum er ég búinn að vera að reyna að finna einhverja meðferð sem virkar. Ég hef legið yfir rannsóknum, skoðað lyf, fæðubótarefni, jurtir og margt fleira. Þegar hún var sjö ára fór hún að fá floga­köst sem hún hafði ekki fengið áður. Ég mundi eft­ir að hafa heyrt um CBD og að það gæti hjálpað, en var samt rag­ur við að prófa af því að fyr­ir mér var kanna­bis bara eit­ur­lyf. En svo fer ég að sjá greinar í vísindatímaritum um þetta efni og þá fór áhuginn að aukast,“ segir Siggi, sem ákvað að fræða sig meira og endaði svo á að fara til Bandaríkjanna:

„En eft­ir að hafa ferðast til Banda­ríkj­anna og kynnst fyr­ir­tæki sem var að fram­leiða ol­í­una tók ég með mér flösk­ur heim og við próf­um að gefa Sunnu. Það varð strax mik­il breyt­ing og á aðeins nokkr­um vik­um fækkaði köst­un­um mikið og á end­an­um hurfu þau al­veg. Á sama tíma byrjaði ég að taka þetta sjálfur líka, af því að ég hafði þróað með mér taugasjúkdóm sjálfur út af álagi. Taugakerfið mitt var komið í rúst og ég var með mikinn svima og sjóntruflanir,“ segir Siggi, sem þurfti að hætta vinnu sinni sem flugumferðarstjóri, sem hann hafði unnið við í 27 ár. En ör­lög­in gripu í taum­ana og álagið við að ann­ast lang­veikt barn tók mik­inn toll. Hann klessti á vegg og neydd­ist til að skilja við fer­il­inn sem flug­um­ferðar­stjóri og leita á önn­ur mið:

„Ég hafði lík­lega verið í „fig­ht or flig­ht“ stöðu nán­ast stans­laust í fleiri fleiri ár og á end­an­um gaf kerfið sig bara. Ég hef alltaf verið rosa­lega virk­ur og vil hafa það þannig og þetta var mjög erfitt tíma­bil. Að geta ekki gert það sem maður er van­ur. En þá þarf maður að finna leiðir og ég gerði allt til þess að ná mér til baka og það tókst á end­an­um. Eitt af því sem hjálpaði mér mikið var CBD-olí­an. Þegar ég hafði bæði séð og fundið áhrifin á sjálfum mér og dóttur minni var ekkert annað í stöðunni en að fara að flytja inn CBD olíu og selja hana. Fyrst þegar ég var að skrifa um þessa plöntu, hampinn og olíuna fékk ég ekki eitt læk á póstana mína og fólk hélt líklega að ég væri orðinn rugludallur. En nú hefur orðið mikil vakning í þessu og CBD er núna notuð af fólki á öllum aldri, sem er jafn­mis­jafnt og það er margt. Sum­ir nota olíuna til að hjálpa til við svefn, aðrir til að slá á skjálfta vegna Park­in­sons eða verki. En ég hef ekki tölu á fólk­inu sem hef­ur komið til mín og fundið mik­inn bata af alls kyns kvill­um og náð að stór­bæta lífs­gæði sín. En samt eru reglurnar í kringum þetta ennþá mjög skrýtnar og það má bara selja þetta sem húðvöru, þó að allir viti að þetta sé tekið inn í gegnum munninn líka.“

„Af hverju var enginn búinn að segja manni frá þessu“

Sig­urður, hefur undanfarin ár barist fyirr því að fá lögleiðingu á CBD, hampi og kannabis í lækningatilgangi. Hann er einn þeirra sem stendur fyrir ráðstefnunni ,,Hampur fyrir framtíðina” sem fram fer næstu helgi í Salnum í Kópavogi:

„Þegar maður upplifir á barninu sínu það sem ég upplifði hugsar maður bara af hverju það var enginn búinn að segja manni frá þessu áður. Öll eigum við einhverja ættingja eða vini sem eru að kljást við einhver veikindi. Viljum við ekki hjálpa þeim og að þau eigi möguleika á að nota náttúrulega lausn ef hún er í boði? Í staðinn fyrir að láta þau fá Oxycontin og dópa þau upp. Að fólk geti byrjað að verða aftur fúnkerandi þegnar í samfélaginu. Það er beinlínis rangt að halda þessu frá fólki ef þetta getur orðið lausn á veikindum eða öðru sem hamlar öllum lífsgæðum. Best væri að lögleiða þetta allt saman eins og gert hefur verið í Möltu, Þýskalandi og fleiri löndum. En þar er ákveðið regluverk sem kemur í veg fyrir að hver sem er geti opnað sjoppu með kannabis. En fólk hefur þá valkost að kljást við sína kvilla með þessum hætti í stað þess að poppa pillur sem hafa yfirleitt miklar aukaverkanir. Það hefur miklu verið tjaldað til í ráðstefnuna núna um helgina og þarna kemur margt af færasta fólki heims til þess að fræða okkur um þessa mögnuðu plöntu. Ég hvet alla til að mæta og ekki síst fólk úr stjórnmálum og heilbrigðisgeiranum.“

Hægt er að nálgast viðtalið við Sigurð og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ungfrú Ísland í hópi útvaldra á góðgerðarviðburði

Ungfrú Ísland í hópi útvaldra á góðgerðarviðburði
Fókus
Í gær

Hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum lýsir starfinu með fyndnum hætti á TikTok

Hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum lýsir starfinu með fyndnum hætti á TikTok
Fókus
Fyrir 2 dögum

Nóg að gera hjá ráðherranum og þreytta aðstoðarmanninum

Nóg að gera hjá ráðherranum og þreytta aðstoðarmanninum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Varð hissa þegar Sölvi sagði henni frá því sem hann sá lögreglumann gera – „Það kemur mér á óvart að heyra þetta“

Varð hissa þegar Sölvi sagði henni frá því sem hann sá lögreglumann gera – „Það kemur mér á óvart að heyra þetta“
FókusMatur
Fyrir 3 dögum

Fat af soðnum vélindum vekur mikið umtal – „Þetta verð ég að smakka“ – „Heima fór þetta í hundana í bókstaflegri merkingu“

Fat af soðnum vélindum vekur mikið umtal – „Þetta verð ég að smakka“ – „Heima fór þetta í hundana í bókstaflegri merkingu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segja stefna í skilnað og harða forsjárdeilu hjá hertogahjónunum

Segja stefna í skilnað og harða forsjárdeilu hjá hertogahjónunum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Karlmennskan heyrir sögunni til – „Það var greinilega ekki mjög sexý söluvara“

Karlmennskan heyrir sögunni til – „Það var greinilega ekki mjög sexý söluvara“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Móeiður glímdi við átröskun í mörg ár – „Þú nærð ekki að hugsa rökrétt“

Móeiður glímdi við átröskun í mörg ár – „Þú nærð ekki að hugsa rökrétt“