Katrín prinsessa reyndi lengi vel að stilla til friðar milli manns síns og bróður hans, en gerir það ekki lengur. Þetta segir rithöfundurinn Christopher Andersen í samtali við FOX en hann skrifaði bókina The King.
„Pælingin að Katrín hafi enn tímann og orkuna til að spila hlutverk sáttamiðlara er galin. Hún reyndi árum saman og rétti svo upp hendur í uppgjöf. Hún gerð sitt en það var ekki nóg til að brúa bilið milli Vilhjálms og Karls annars vegar og svo Harry hins vegar.“
Konunglegi sérfræðingurinn Richard Fitzwilliams segir að Katrín standi nú með manni sínum og ætli sér ekki skipta sér að bræðradeilunum frekar. „Harry sagði í æviminningum sínum, bókinni Spare, að Katrín hafi verið bæði kuldaleg og ógestrisin við Meghan Markle, og á sama tíma teiknaði hann upp mjög skaðandi mynd af konungsfjölskyldunni. Nú á að gefa ævisöguna út í kilju og þá munu þessar ásakanir aftur fara á flug, en sem betur fer mun hann ekki bæta í þær eða fara í frekari kynningarvinnu. Hann veit nákvæmlega hversu skaðlegt þetta hefur verið.“
Fitzwilliams segir að Katrín hafi um nóg annað að hugsa. Hún hefur nú snúið aftur til starfa eftir veikindafrí og setur nú heilsu sína í forgang. „Hún einbeitir sér nú að því að vera laus við krabbameinið. Þetta hefur verið erfitt ár fyrir fjölskylduna. Hún lauk fyrirbyggjandi lyfjameðferð og Vilhjálmur hefur staðið þétt við bak hennar samhliða konunglegum skyldum. Katrín mun nú forðast alla neikvæðni.“