fbpx
Föstudagur 04.október 2024
Fókus

Þetta eru fórnirnar fimm sem ég færði til að léttast um 70 kíló

Fókus
Föstudaginn 4. október 2024 21:30

Amber Clemens.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Amber Clemens veit hvað hún syngur þegar kemur að því að ráðleggja fólki sem er að leggja af stað í lífstílsbreytingu til að bæta heilsu sína. Á árunum 2018 til 2020 léttist hún um 70 kíló og hefur hún viðhaldið árangri sínum á þeim tíma sem liðinn er.

Amber, sem er búsett í Wisconsin í Bandaríkjunum, starfar í dag sem heilsuráðgjafi og til marks um vinsældir hennar má geta þess að fylgjendur hennar á TikTok eru tæplega milljón talsins.

Í myndbandi sem hún birti í vikunni varpar hún ljósi á hvaða fórnir hún þurfti að færa til að ná þessum árangri og viðhalda honum sem er kannski það sem mestu skiptir.

Nefnir hún að nær allur matur sem hún innbyrðir sé heimatilbúinn, hún heldur sig frá sykruðum drykkjum, passar að skammtastærðirnar séu réttar og setur sér raunhæf markmið um hreyfingu á degi hverjum.

1. Undirbýr nær allar máltíðir sjálf

Amber segir að hún reyni að borða aldrei meira en tvær máltíðir í viku sem hún undirbýr ekki sjálf. Matur á veitingastöðum eigi það nefnilega til að innihalda meiri fitu og salt, fleiri hitaeiningar og minni trefjar og næringarefni en matur sem þú getur gert heima hjá þér. Skammtarnir á veitingastöðum séu líka oft á tíðum mjög stórir og það geti sett strik í reikninginn.

2. Sykurlausir drykkir

Amber segist hafa skipt út sykruðum drykkjum fyrir sykurlausa drykki og hún hafi haldið sig við það. Hún bendir þó að sykurlausir gosdrykkir séu engin hollustuvara og í raun eigi að umgangast þá eins og um sykraða gosdrykki sé að ræða. En það er hægt að fá sér ýmislegt annað en sykrað eða sykurlaust gos með sætuefnum. Til dæmis vatn, ósætt íste, kókosvatn og grænmetissafa.

3. Passaðu skammtastærðirnar

Það getur verið freistandi þegar maður vill „leyfa sér smá“ að tína til dæmis upp í sig úr heilum snakkpoka og nota einhverja góða ídýfu með. Amber mælir með því að fólk kaupi sér frekar tilbúna skammta (e. pre-portioned snacks) og haldi sig við þá. Þannig minnki hættan á því að þú innbyrðir of margar hitaeiningar.

4. Pældu í hitaeiningunum

Amber pælir mikið í því hversu margar hitaeiningar hún innbyrðir yfir daginn. Lykilinn að því að léttast og viðhalda þyngdartapi er að innbyrða færri hitaeiningar en líkaminn notar. Hún segir að mikilvægt sé að pæla í öllu sem maður borðar og kannski sérstaklega ef maður fær sér sætan eftirrétt.

5. Markmið um hreyfingu

Hreyfing skiptir auðvitað miklu máli og sjálf setur Amber sér markmið um að taka ákveðinn fjölda skrefa á hverjum degi. Sumir hafa haldið því fram að tíu þúsund skref á hverjum degi sé gott markmið en vísindamenn hafa reyndar bent á að ekki sé þörf á að taka svo mörg skref til að ná betri heilsu. Mikilvægast er þó að hver og einn setji sér raunhæft markmið með tilliti til aldurs, þyngdar og annarrar hreyfingar. Þeir sem eiga snjallúr geta fylgst tiltölulega auðveldlega með daglegum skrefafjölda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Gömul hugmynd mín að glæpamynd hefur bara illu heilli raungerst“

„Gömul hugmynd mín að glæpamynd hefur bara illu heilli raungerst“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sunneva er að láta fjarlægja tattú sem hefur allt aðra og svæsnari merkingu en hún hélt fyrst – „Ég hefði alveg getað hugsað þetta betur“

Sunneva er að láta fjarlægja tattú sem hefur allt aðra og svæsnari merkingu en hún hélt fyrst – „Ég hefði alveg getað hugsað þetta betur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Opinberar leyndarmálið á bak við 40 ára samband

Opinberar leyndarmálið á bak við 40 ára samband
Fókus
Fyrir 3 dögum

Pyntuð af foreldrum sínum: Gleymir ekki svipnum á kennaranum þegar hún sagði frá því sem stjúpfaðirinn bað um

Pyntuð af foreldrum sínum: Gleymir ekki svipnum á kennaranum þegar hún sagði frá því sem stjúpfaðirinn bað um