fbpx
Föstudagur 04.október 2024
Fókus

„Áhyggjur, óvissa og of mörg verkefni verða oft til þess að aðstandendur gleyma að huga að sér“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 4. október 2024 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu, segir það mikilvægt fyrir nánustu aðstandendur krabbameinsveikra að hlúa einnig að sér og sinni heilsu. Því megi ekki slá á frest.

Það er nauðsynlegt fyrir þig og í raun líka ástvin þinn sem gengur í gegnum veikindin að þú leitir leiða til að hlúa að þér og þínum þörfum.,

segir Lóa Björk í grein sinni á Vísi.

Aðstandendur upplifa einnig erfiðar tilfinningar

Segir hún rannsóknir sýna að nánustu aðstandendur upplifa ekki síður erfiðar tilfinningar en sá sem greinist með krabbamein, tilfinningar á borð við áhyggjur, ótta, reiði, depurð eða sektarkennd. 

Einnig sýna niðurstöður að í aðstæðum sem þessum verður tilhneiging til að hætta að stunda sín áhugamál eða hitta vini, draga úr hreyfingu og borða óhollara fæði. Nánustu aðstandendur tjá sig líka sláandi oft um kvilla eins og þreytu, svefntruflanir, einkenni frá stoðkerfi og stundum einkenni frá hjarta og æðakerfi eins og hækkaðan blóðþrýsting eða mæði. Það er því gríðarlega mikilvægt að fólk í nánasta hring fjölskyldunnar; vinir, vinnufélagar og ekki síst heilbrigðisstarfsfólk sé meðvitað um að nánustu aðstandendur þurfa líka á stuðningi að halda og hvatningu til að hlúa að sér líkt og sá sem að gengur í gegnum veikindin.

Lóa Björk segir að í samtölum hennar við aðstandendur þeirra sem hafa greinst með krabbamein heyri hún oft setningar eins og: „ Ég hvíli mig seinna“ eða „Ég byrja aftur í tennis þegar hægist um“.

Ástæðan sé sú að áhyggjur, óvissa og of mörg verkefni verða oft til þess að aðstandendur gleyma að huga að sér og sinni andlegu og líkamlegu heilsu eða finna hreinlega ekki tímann í það að sögn Lóu Bjarkar sem heldur áfram:

„Krabbamein er sjúkdómur sem hefur mismikil og alvarleg áhrif á líf þess sem greinist og fjölskyldu hans. Áhrifin ráðast til að mynda af því á hvaða stigi sjúkdómurinn greinist og/eða hversu íþyngjandi einkenni vegna hans eða krabbameinsmeðferðar eru fyrir hvern og einn. Í mörgum tilvikum er það svo að sá sem glímir við krabbamein eða er í krabbameinsmeðferð hefur ekki bolmagn til að sinna öllum þeim verkefnum og hlutverkum sem hann sinnti áður. Sem betur fer þó oftast tímabundið en stundum til lengri tíma. Oft færast þau verkefni því óhjákvæmilega á hendur þess eða þeirra sem standa næst einstaklingnum. Einstaklingur getur glímt við slappleika og þurft á því að halda að nánasti aðstandandi haldi utan um upplýsingar, tímabókanir og annað sem tengist veikindunum. Aðstandendur sinna líka í raun oft hlutverki heilbrigðisstarfsmanns þegar kemur að því að fylgjast með líðan viðkomandi, jafnvel að halda utan um lyfjagjafir, aðstoða með ýmsa hluti og að bregðast við ef einkenni koma upp sem þarfnast inngripa. Allt þetta getur valdið álagi og streitu ofan á þær hugsanir og tilfinningar sem aðstandendur takast á við.“

Lóa Björk Ólafsdóttir

Góð ráð til að hlúa að sér 

Lóa Björk birtir nokkur góð ráð sem vert er fyrir aðstandendur að hafa í huga: 

  • Stundaðu áfram þín áhugamál eftir fremsta megni og gefðu þér tíma til að hitta góða vini. Ef ástvinur þinn getur ekki verið einn heima vegna veikindanna gæti hjálpað að sækja um öryggishnapp eða að biðja um hjálp frá fjölskyldu og vinum við að vera hjá viðkomandi á meðan þú ert frá. Gott er þá að slík viðvera sé skipulögð á vissum dögum og tímum.
  • Mættu í bókaða tíma sem varða þína heilsu og velferð og leitaðu til læknis ef þú finnur fyrir andlegum eða líkamlegum einkennum sem eru viðvarandi. Í þeim tilvikum sem einkenna frá hjarta verður vart er ráðlegt að leita strax læknisaðstoðar.
  • Það að leitast við að borða hollan mat, hreyfa sig og að fá nægan svefn getur hjálpað mikið og gefið kraft og styrk til að komast í gegnum erfiða tíma. Það koma kannski dagar sem þetta er ekki mögulegt og það er líka eðlilegt.
  • Gefðu þér rými til að ræða það sem hvílir á þér við þá sem þér finnst gott að tala við eða fagaðila. Það er eðlilegt að takast á við alls konar hugsanir og tilfinningar. Oft vill sá sem gengur í gegnum veikindin líka finna að hann geti verið til staðar áfram fyrir þig.
  • Finndu eitthvað til að hlakka til. Það þarf ekki alltaf að vera eitthvað stórt.
  • Reyndu að einfalda lífið eins og hægt er og minnka á þig kröfurnar þar sem það er mögulegt. Til dæmis hafa sumir pantað tilbúinn mat á vissum dögum eða verslað á netinu og fengið matvörur sendar heim.
  • Lærðu að þiggja aðstoð eða biðja um hana, eins erfitt og það getur reynst. Gott getur verið að átta þig á því hvað aðrir gætu helst aðstoðað með. Oft finnst fólki gott að fá hlutverk og að geta hjálpað til.
  • Ef við á getur verið gott að ræða stöðuna við yfirmann eða samstarfsfélaga og kanna möguleika á sveigjanleika varðandi verkefni og vinnutíma ef á þarf að halda.

„Samkenndin, ástin og þörfin til að vera til staðar fyrir fólkið sem við elskum er vissulega einn af ómetanlegum eiginleikum manneskjunnar og fyrir marga eitt af því sem gerir lífið þess virði að lifa því. Bláköld eru þó vísindin á bak við regluna um að setja skuli súrefnisgrímuna fyrst á sig og svo á þann sem maður vill aðstoða.“

Greinina má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Móeiður tók ákvörðun um að eignast ekki börn – „Ég hef ekki fengið þessa tilfinningu en það er rosa pressa frá samfélaginu“

Móeiður tók ákvörðun um að eignast ekki börn – „Ég hef ekki fengið þessa tilfinningu en það er rosa pressa frá samfélaginu“
Fókus
Í gær

Augnablikið sem sagði stjörnugestunum að yfirgefa partý Diddy áður en allt færi úr böndunum

Augnablikið sem sagði stjörnugestunum að yfirgefa partý Diddy áður en allt færi úr böndunum
Fókus
Í gær

„Þetta er mjög hættulegt og fyrir ungar stelpur er þetta enn hættulegra“

„Þetta er mjög hættulegt og fyrir ungar stelpur er þetta enn hættulegra“
Fókus
Í gær

Þreytandi listi Fjólu lýsir hugarfari margra landsmanna

Þreytandi listi Fjólu lýsir hugarfari margra landsmanna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sigmar og Sandra fóru nakin í heita pottinn með vinum og það varð ekki aftur snúið

Sigmar og Sandra fóru nakin í heita pottinn með vinum og það varð ekki aftur snúið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Nicole Kidman vekur athygli í erótískum trylli – Mótleikarinn er 29 árum yngri

Nicole Kidman vekur athygli í erótískum trylli – Mótleikarinn er 29 árum yngri
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur Christinu Aguilera áhyggjufullir eftir að þessar myndir birtust

Aðdáendur Christinu Aguilera áhyggjufullir eftir að þessar myndir birtust
Fókus
Fyrir 3 dögum

Britney Spears brenndi af sér hár, augnhár og augabrúnir í „mjög slæmu“ brunaslysi

Britney Spears brenndi af sér hár, augnhár og augabrúnir í „mjög slæmu“ brunaslysi