Sennilega margt, en hér að neðan má engu að síður sjá býsna gott húsráð sem virkar vel þegar verið er að þrífa til dæmis klósett eða mjög skítuga potta.
Með því blanda saman 150 millílítrum af ediki, matskeið af salti og smá slettu af uppþvottalegi færðu sannkallaða undrablöndu sem getur komið að góðum notum.
Á myndbandinu má sjá þegar blöndunni er hellt ofan í klósettið og hún látin standa í hálftíma. Að þeim tíma loknum notar hann klósettbursta til að fara yfir skálina og árangurinn lætur ekki á sér standa eins og sjá má.
Þá má sjá þegar matskeið af blöndunni er notuð við að hreinsa pott. Virkar blandan vel til dæmis þegar eitthvað hefur brunnið í pottinum.
Sjón er sögu ríkari en myndbandið má sjá hér að neðan: