Þau stórtíðindi voru að berast frá Hollywood að leikarinn Leonardo DiCaprio sást með nýrri konu. Það eitt og sér er ekki óvenjulegt enda er DiCaprio sjaldan einhleypur lengi. Það er er fréttnæmt við þetta nýja par er aldur konunnar, en hún er 33 ára, já og líka það að DiCaprio er á föstu með fyrirsætunni Vitorria Ceretti.
Mikið hefur verið fjallað um ástarmál leikarans, sem er tæplega fimmtugur, eftir að það kom á daginn að hann hefur aldrei átt í ástarsambandi við konu sem er eldri en 25 ára. Þvert á móti virtist DiCaprio alltaf slíta samböndum við konur áður en þær náðu þessum aldri eða rétt eftir, eins og sjá má á meðfylgjandi töflu.
DailyMail greinir nú hátíðlega frá því að leikarinn hafi á dögunum sést með söngkonunni Teyana Taylor. Þau voru saman allt kvöldið að sögn sjónarvotta og yfirgáfu skemmtistað saman seint um nóttina. Taylor og DiCaprio hafa áður verið orðuð við ástarsamband en halda því þó bæði fram að þau séu bara vinir. Aðilar kunnugir leikaranum segja að hann hafi aldrei verið kærustu sinni, Ceretti, ótrúr.
En sama hvað þá er vítahringurinn rofinn því Ceretti er orðin 26 ára. Og ef Taylor og DiCaprio eru að stinga saman nefjum þá er vítahringurinn enn frekar rofinn því Taylor er 33 ára.