fbpx
Laugardagur 26.október 2024
Fókus

Konan mín til 20 ára vill að ég finni mér kærustu – Hvað á ég að gera?

Fókus
Fimmtudaginn 24. október 2024 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður sem hefur verið kvæntur í tuttugu ár leitaði til sambandsráðgjafa The Sun og bað um ráð í óvenjulegri og óþægilegri stöðu sem hann er í.

„Konan mín hefur hvatt mig til að finna mér kærustu þar sem hún segist ekki hafa áhuga á körlum. Eftir tuttugu ára hjónaband hefur hún loksins viðurkennt að hún er lesbía,“ segir maðurinn í bréfi sínu sem sambandsráðgjafinn Sally Land svarar og birt er í dálkinum Dear Deidre.

Maðurinn lýsir aðstæðum sínum nánar:

„Á þeim tíma þegar við stunduðum kynlíf reyndi hún að fá mig til að leika konu. Mér fannst það niðurlægjandi. Ég er 55 ára og hún 53 og við höfum verið gift í 20 ár. Þegar við byrjuðum saman á sínum tíma hafði ég ekki hugmynd um að hún væri spennt fyrir konum. Kynlífið okkar var eiginlega alltaf ákveðið vandamál. Stundum vildi hún stunda það þrisvar á dag og stundum aldrei – en það var alltaf á hennar forsendum. Ég fílaði það ekki en vildi síður rugga bátnum þar sem við áttum lítil börn.“

Maðurinn segir að fyrir sex árum hafi konan svo játað að hafa haldið fram hjá honum með konu sem hún vinnur með. Um leið hafi hún viðurkennt að laðast kynferðislega að konum og, það sem meira er, þá hafi hún engan áhuga á körlum.

„Það kemur því kannski ekki á óvart að við höfum ekki stundað kynlíf síðan. Hún á það til að vera kvikindisleg við mig og láta mig líða eins og ég sé óaðlaðandi og gagnslaus. Ég umber þessa hegðun af því að ég elska konuna mína og vona enn að samband okkar lagist.“

Maðurinn segir að nýleg hafi hann sagt konu sinni að hann vildi laga sambandið og byrja að stunda kynlíf aftur. „En hún bara hló, sagðist ekki hafa áhuga og lagði til að ég fyndi mér kærustu í staðinn. En ég vil það ekki, ég vil laga hjónabandið mitt. Hvað á ég að gera?“

Sally segir í svari sínu að það sé engum vafa undirorpið að hann sé í mjög óheilbrigðu hjónabandi með konu sem hefur haldið fram hjá honum og hafnað honum. Með hátterni sínu hafi hún sýnt honum misbeitingu.

„Ég veit að þú segist elska hana en staðreyndin er sú að þú átt svo miklu, miklu betra skilið en að vera með manneskju sem hefur gefið skýrt til kynna að hún vilji þig ekki. Stjórnsöm hegðun hennar hefur skemmt sjálfstraust þitt,“ segir Sally og bætir við:

„Þó skilnaður geti verið sársaukafullur myndi hann veita þér tækifæri á að kynnast annarri manneskju sem bæði virðir þig og þráir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Eiginmaður Mínervu barðist við krabbamein í tæp 6 ár – „Ég gleymdi sjálfri mér“

Eiginmaður Mínervu barðist við krabbamein í tæp 6 ár – „Ég gleymdi sjálfri mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stunurnar í Lennon og ókunnri konu heyrðust fram – Gestir í áfalli reyndu að yfirgefa partýið meðan Ono hlustaði á

Stunurnar í Lennon og ókunnri konu heyrðust fram – Gestir í áfalli reyndu að yfirgefa partýið meðan Ono hlustaði á
Fókus
Fyrir 4 dögum

Spurði alla karlmenn að því sama áður en hún stundaði kynlíf með þeim

Spurði alla karlmenn að því sama áður en hún stundaði kynlíf með þeim
Fókus
Fyrir 4 dögum

Myndavél Ásu Steinars fraus en það var þess virði – Sjáðu af hverju

Myndavél Ásu Steinars fraus en það var þess virði – Sjáðu af hverju