fbpx
Föstudagur 25.október 2024
Fókus

Var stjarna í vinsælustu unglingaþáttunum en á bak við luktar dyr stjórnaði sértrúarsöfnuðurinn öllu

Fókus
Miðvikudaginn 23. október 2024 14:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skömmu eftir aldamótin lék lífið við leikkonuna Bethany Joy Lenz. Hún fór með eitt aðalhlutverkið í vinsælustu unglingaþáttum þess tíma, One Tree Hill. En á bak við luktar dyr var lífið enginn glamúr. Hún hafði nefnilega sogast inn í sértrúarsöfnuð sem síðan tók alfarið yfir líf hennar.

Um var að ræða lítinn söfnuð sem byggði á öfgafullum hugmyndum um kristni. Leiðtogi safnaðarins, vafasamur prestur, tók að sér að stjórna ferli leikkonunnar, einkalífi og loks tekjum hennar. Það tók hana áratug að sleppa undan valdi safnaðarins og þurfti hún þá að byggja líf sitt upp aftur frá grunni. Hún hefur nú skrifað bók um þessa reynslu sína en hún segir í samtali við People að það hafi tekið hana alltof langan tíma að horfast í augu við það að hafa gengið í sértrúarsöfnuð.

„Mér finnst þetta ekki hugrekki. Mér finnst þetta mikilvægt. Að þjást í þögninni, eins og ég gerði, ég veit ekki hvort það geti hjálpað einhverjum. En mér finnst þetta vera það eina rétta til að gera“

Þegar Bethany flutti til Los Angeles til að láta drauminn rætast gekk hún í biblíuhóp, enda var trúin henni mikilvæg. Þar kynntist hún prestinum Les.

Hún segir að biblíuhópurinn hafi verið frábær, til að byrja með. Þar sungu þau saman, tilbáðu guð sinn og áttu djúpar og heimspekilegar samræður um trúnna. Hún var týnd, á nýjum stað í lífinu og þráði þessa nánd sem fylgdi trúnni.

Var of djúpt sokkin

Presturinn Les kom og heimsótti hópinn. Bethany fannst ekkert skrítið við þá heimsókn. Jafnvel þegar presturinn sannfærði hópinn um að flytja með honum í stórt hús í Idaho til að lifa þar sem lítið trúarlegt samfélag.

„Mér fannst þetta bara eðlilegt. Svo umbreyttist þetta. En þegar þetta fór að breytast þá var ég of djúpt sokkin til að taka eftir því. Ég var líka svo rosalega ung.“

Hún segir að meðleikarar hennar í One Tree Hill hafi áttað sig á stöðunni áður en hún gerði það sjálf.

„Ég gat bara séð það á þeim. En ég réttlætti það, ég gat ekki mögulega verið í sértrúarsöfnuði.“

Hún sannfærði sjálfan sig um að aðrir öfunduðu hana bara af sambandi hennar við guð og söfnuðinn. Sértrúarsöfnuðir væru eitthvað allt annað. Þar klæddi fólk sig í búninga og hegðuðu sér undarlega. Hún var bara að tilbiðja hinn kristna guð.

Lygar um kynlíf

Presturinn sannfærði Bethany að bíða með kynlíf þar til hún gifti sig. Henni gekk þó illa að finna mann sem var nógu kristinn og sem gæti fellt sig við söfnuðinn. Því fór svo að hún gekk að eiga son prestsins. Þau áttu þó lítið sameiginlegt annað en trúnna.

„Ég hélt að ef ég biði með kynlíf fram að hjónabandi þá ætti ég í vændum ólýsanlega gott kynlíf með djúpri nánd. Ekkert yrði jafn gott, þetta yrði það besta í heimi“

Þetta reyndist þó lygi. „Svo stunduðum við kynlíf og ég hugsaði – Hvers vegna er ég svona leið? Mér finnst ég ekkert nánari manni mínum. Mér fannst ég lengra frá honum en áður.“

Til að bæta kynlífið ákvað presturinn að skipuleggja kynlífsplan fyrir þau. Hún þyrfti að stunda kynlíf á tilteknum dögum því það væri hennar skylda sem eiginkona. Líkaminn hennar myndi stilla sig inn á það á endanum og hún myndi læra að njóta kynlífsins.

Þetta gerði kynlíf svo fráhrindandi að hana hlakkaði til þess þegar maður hennar ferðaðist og kveið því að hann kæmi heim. Hún segist þó hafa samúð með sínum fyrrverandi, en hann hafi eins og hún verið fórnarlamb aðstæðna.

„Hann var alinn upp af þessum narsissista. Hann var þvingaður í hjónaband sem hentaði honum ekki og reyndi sitt besta. Hann hafði líka verið alinn upp með þessar lygar um karlmenn og karlmennsku“

Flúði alslaus til Hollywood

Árið 2010 eignaðist hún dóttur sína, Rosie. Þá fór Bethany að sjá í gegnum leikritið og vildi losna undan prestinum. En það átti ekki eftir að vera auðvelt.

„Það var svo mikið í húfi. Þetta voru mínir einu vinir. Ég var gift inn í þennan hóp. Ég hafði byggt líf mitt í kringum hann. Ef ég viðurkenndi að hafa rangt fyrir mér þá myndi tilvera mín hrynja.“

Bethany flúði þó með dóttur sína til Hollywood. Hún gekk úr söfnuðinum, hún skildi við mann sinn og hún missti alla vini sína. One Tree Hill hafði lokið göngu sinni svo hún var líka atvinnulaus. Söfnuðurinn hafði haft af henni allar tekjurnar svo hún var líka blönk.

„Ég eyddi mörgum nóttum grátandi á gólfinu á meðan ég reyndi að vinna mig í gegnum þetta og finna út hvað ég ætti til bragðs að taka. Og hvað ég ætti að gera við tilfinningar mínar, reiðina og ranglætið.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Jón Daði í Wrexham
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hannes Hólmsteinn í hópi með skapara Hringadróttinssögu, ráðherra Biden, og versta óvini járnfrúarinnar

Hannes Hólmsteinn í hópi með skapara Hringadróttinssögu, ráðherra Biden, og versta óvini járnfrúarinnar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Einn ferðafélaga Sunnu Kristínar er lífsógnandi sjúkdómur – „Sem ég veit aldrei hvenær skýtur aftur upp kollinum“

Einn ferðafélaga Sunnu Kristínar er lífsógnandi sjúkdómur – „Sem ég veit aldrei hvenær skýtur aftur upp kollinum“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Börn Diddy standa með honum í flóðbylgju ásakana á hendur honum – „Síðasti mánuður hefur tortímt fjölskyldu okkar“

Börn Diddy standa með honum í flóðbylgju ásakana á hendur honum – „Síðasti mánuður hefur tortímt fjölskyldu okkar“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég gekk inn mölbrotin á líkama og sál“

„Ég gekk inn mölbrotin á líkama og sál“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stunurnar í Lennon og ókunnri konu heyrðust fram – Gestir í áfalli reyndu að yfirgefa partýið meðan Ono hlustaði á

Stunurnar í Lennon og ókunnri konu heyrðust fram – Gestir í áfalli reyndu að yfirgefa partýið meðan Ono hlustaði á
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ívar var fastur í hreinasta helvíti – „Þetta var mikil þjáning“

Ívar var fastur í hreinasta helvíti – „Þetta var mikil þjáning“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Spurði alla karlmenn að því sama áður en hún stundaði kynlíf með þeim

Spurði alla karlmenn að því sama áður en hún stundaði kynlíf með þeim