Hryllingsmyndin Eftirleikir (e. Aftergames) eftir Ólaf Árheim er heimsfrumsýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík (RIFF) sem stendur yfir í Háskólabíói til 6. október, en höfundurinn er hugsi yfir þeirri ofbeldisöldu sem nú gengur yfir Ísland með jafn átakanlegum afleiðingum og raun ber vitni.
„Ég fékk hugmyndina að þessari glæpamynd þegar ég útskrifaðist úr Kvikmyndaskólanum fyrir átta árum, þá alveg heillaður af alvöru glæpamálum, en taldi þó hugmyndina að henni vera jafn fáránlega og hún var ýkt á þeim tíma. Mér fannst ég vera að semja algert bull, um eitthvað sem væri óhugsandi á Íslandi. Núna, tæpum áratug síðar, eru svona glæpir orðnir algengir. Það er morðalda í landinu og ekki færri en tólf myrtir síðasta hálfa annað árið, börn jafnt og fullorðnir. Þetta er skelfilegt,“ segir Ólafur Árheim sem er allt í senn leikstjóri og framleiðandi, tökumaður, hljóðmaður og klippari þessarar fyrstu leiknu myndar sinnar í fullri lengd.
Þessi harla ískyggilegi tryllir hans fjallar um mann í leit að dauðanum og konu á flótta sem reyna að gera upp ofbeldisfulla fortíð sína með enn frekari hrottaskap, svo einhver er nú undiraldan.
Ólafur lauk við klippingu ræmunnar í ár, en aðdragandinn er langur, enda hugmyndin fyrst sett á blað 2016 og tökur stóðu yfir með hléum 2017, 2019 og 2021, en að lokum var tveggja tíma útgáfa af verkinu trimmuð niður í 81 mínútu – og sú eftirtekja verður sumsé heimsfrumsýnd á RIFF sem hefst á fimmtudag í næstu viku, ásamt því sem hún birtist um sama leyti á hryllingsmyndahátíðinni Cinema Scare í Indíana í Bandaríkjunum.
Og þetta er sko ekki síðasta kvikmynd Ólafs Árheims. „Ég er búinn að vera kvikmyndagerðarmaður frá níu ára aldri og klæjar jafn mikið í fingurna og tærnar að byrja á næsta verki,“ segir hryllingsmyndasmiðurinn.