„Snerti Þig er poppað ástarlag sem varð til í fyrsta studio sessioninu sem við Dagbjartur tókum,“ segir Katrín Myrra.
„Lagið fjallar um ástarsamband þar sem báðir einstaklingar bera mjög sterkar tilfinningar til hvors annars. Ég vissi að mig langaði að gera dans popp lag en ég var ekki alveg viss um hvað mig langaði að lagið ætti að fjalla um, sem er svolítið ólíkt mér af því yfirleitt flæða bara textarnir og hugmyndirnar. En ég fór að velta því aðeins fyrir mér og hugsaði að það gæti verið af því að mér líður bara frekar vel í lífinu. Það er ekkert drama, ekkert vesen bara þægileg í heilbrigðu ástarsambandi og þaðan kom fyrsta hugmyndin af textanum.“
Dagbjartur sá um að pródúsera lagið. „Svo hjálpuðumst við að með laglínur og textaskrif. Við erum mjög gott teymi og vinnum mjög vel saman þannig þetta er bara fyrsta lagið sem við gefum út en alls ekki það síðasta,“ segir Katrín Myrra.
„Aron Már Stefánsson (Midnight Mar) hjálpaði mér með myndina fyrir umslagið (e. cover art). Ég er ekkert smá ánægð með og Theódóra Gyrðisdóttir besta vinkona mín og fatahönnuður sá um að klæða mig upp og er ég í handsaumuðum kjól eftir hana á myndinni. Mér fannst þetta eiginlega það flott umslag að ég varð að búa til nokkra boli eða smá varning þannig það verður hægt að styrkja mitt tónlistarferðalag og kaupa bol með því að senda mér skilaboð á Instagram eða Facebook.“
Katrín Myrra var gestur í Fókus, spjallþætti DV, í apríl.
Sjá einnig: „Í dag er þetta eitthvað sem gerir mig sterkari“
Fylgstu með Katrínu Myrru á Instagram, TikTok og hlustaðu á tónlistina hennar á Spotify.