Payne lést í Buenos Aires í Argentínu í gær, 31 árs að aldri, eftir að hafa hrapað til bana af svölum hótelherbergis í borginni.
TMZ hefur haft orð á sér að vera jafnan fyrst með fréttirnar og í fyrstu frétt miðilsins af andlátinu í gærkvöldi mátti meðal annars sjá nærmynd af handleggnum á Payne þar sem hann lá örendur. Payne var auðþekkjanlegur á húðflúrum sem hann var með á handleggjunum og á búknum.
Varpa ljósi á neyðarlínusímtal áður en Liam Payne hrapaði til bana
TMZ hefur nú fjarlægt umræddar myndir úr fréttinni og umorðað hana en óhætt er að segja að mörgum lesendum TMZ og aðdáendum tónlistarmannsins hafi verið verulega misboðið eins og fram kemur í frétt News.com.au.
„Það var engin þörf á að birta þessar myndir,“ sagði til dæmis einn á X. „Þið eruð brjáluð að hafa birt þetta,“ sagði annar. Fleiri tóku í svipaðan streng:
„Ég vildi að ég gæti sagt að þessi birting hjá TMZ kæmi mér á óvart en ég er ekki hissa. Hvar eru heilindin sem fólk í blaðamennsku þarf að starfa eftir? Þetta er ömurlegt. Sonur hans mun einn daginn sjá þessar myndir,“ sagði einn og vísaði í sjö ára son Liams sem hann á með tónlistarkonunni Cheryl Cole.
„Þetta er svo mikil vanvirðing. Þetta bókstaflega var að gerast. Ég er viss um að ekki sé einu sinni búið að ná í alla aðstandendur hans eða vini. Sýnið smá klassa, TMZ. Það er hægt að flytja fréttir án þess að gera það á viðbjóðslegan hátt.“
Þess vegna flaug kærasta Liam Payne heim nokkrum dögum áður en hann dó