fbpx
Þriðjudagur 15.október 2024
Fókus

Númi Snær: „Það eru tvítugir karlmenn í dag sem þurfa Viagra til að geta stundað kynlíf“

Fókus
Þriðjudaginn 15. október 2024 08:54

Númi Snær Katrínarson. Mynd/YouTube/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Númi Snær Katrínarson, þjálfari og rekstrarmaður, breytti um takt fyrir nokkrum árum eftir að klesst á vegg. Númi, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, var kominn keppnismaður í Crossfit ásamt því að reka fjölskyldu og fyrirtæki og eitthvað varð undan að láta. Hann hefur undanfarin ár einbeitt sér að heildrænni heilsu:

„Ég lenti á botninum. Hvort sem við köllum það burnout eða eitthvað annað, þá var hraðinn á mér búinn að vera allt of mikill. Ég var búinn að æfa tvisvar á dag nánast allt mitt líf og svo var ég að læra, eignast börn og að reka fyrirtæki. Þetta var bara of mikið og ég náði engum tíma fyrir mig og var eiginlega bara hættur að geta andað. En það er kannski ekki nema von að maður fari í þessa átt miðað við skilyrðin. Manni hefur bara verið kennt að vera karlmaður, slá í borðið og drekka meira kaffi og halda áfram og ég var alltaf bara þannig. En ég neyddist til að endurskoða mjög margt í mínu lífi eftir þetta tímabil og þurfti að hægja allverulega á mér,” segir Númi, sem segist sjá það vel í störfum sínum hve stór hluti Íslendinga sé fastur í streituástandi.

„Við gefum okkur fæst tíma og rými til að hægja á okkur og spyrja okkur hvort við séum að gera það sem við viljum gera í lífinu og hvort við séum að fara í rétta átt. Tilhneigingin er að halda bara áfram að hlaupa án þess að vita hvert maður er að fara. En staðreyndin er bara sú að það er svo mikil viska í kyrrðinni og þar fær maður svörin. Það er svo mikilvægt að jarðtengja sig mjög reglulega, ná að hlusta á innsæið og gefa sér rými. Svörin eru öll innra með okkur og líkaminn er stórkostlegt tæki sem kann að heila sjálfan sig ef við hlustum almennilega á hvað hann er að reyna að segja okkur. En í nútímanum er áreitið á okkur svo mikið og svo setjum við líkamann úr jafnvægi með alls konar áráttukenndri hegðun varðandi mat og annað. Þá endar það bara með því að við erum einfaldlega hætt að leyfa líkamanum að vinna sína vinnu í friði.”

Menningarsjokk þegar þau komu aftur til Íslands

Númi segist hafa fengið menningarsjokk þegar hann kom aftur til Íslands eftir að hafa dvalið mánuðum saman í frumskógum Costa Rica með fjölskyldu sinni. Hann segir hraðann á Íslandi vera gríðarlegan og að við séum að drepa okkur á óhollum lífsstíl. Hann segir ferðina til Costa Rica hafa breytt viðhorfum sínum og fjölskyldu sinnar.

„Okkur langaði númer eitt tvö og þrjú bara að taka allt úr sambandi. Ekki síst fyrir krakkana okkar. Að hverfa, tengjast og vera í náttúrunni. Og hvað er þá betra en að fara bara inn í frumskóginn eins langt frá því sem við þekkjum og mögulegt er. Þetta var rosaleg upplifun. Við bjuggum í litlu húsi í skóginum með apa, fugla og skordýr allt í kring. Þar vorum við hluti af samfélagi þar sem allir hjálpast að til að geta búið þarna. Krakkarnir fóru í skóla og við vorum að vinna hluta af deginum og svo voru alls konar uppákomur, listsköpun og fleira. Það er erfitt að útskýra það sem við upplifðum þarna, en það var magnað að vera inni í frumskóginum og vakna upp við dýrahljóðin á hverjum degi og taka 40 mínútur á hverju kvöldi í hugleiðslu og tengingu við dýralífið og náttúruna. Við fengum menningarsjokk þegar við komum heim. Það er svo mikill hraði á Íslandi, efnishyggja og keyrsla. Fólk er að mínu mati oft að elta eitthvað sem það veit ekki einu sinni hvað er. Brynjan hjá mörgum er orðin mjög þykk í þessu efnishyggjukapphlaupi, en innst inni viljum við öll bara vera séð, heyrð og snert,” segir Númi, sem hefur sterkar skoðanir á því sem er að gerast í samfélaginu okkar, ekki síst eftir að hafa starfað í áraraðir við að hjálpa fólki með heilsu.

„Ég vil ekki vera neikvæður eða vera með boð og bönn, en við erum á svo margan hátt á rangri leið. Mér finnst þetta fyrst og fremst snúast um börnin okkar. Hver ætlar að taka við þegar við föllum frá? Er eðlilegt að við séum að fóðra krakka undir 10 ára og auðvitað unglinga líka með sykurlegi, gervimat, orkudrykkkjum og aukaefnakokteilum? Svo erum við komin með lyfin inn þegar þau eru 5-6 ára gömul og það eru tvítugir karlmenn í dag sem þurfa Viagra til að geta stundað kynlíf. Mér finnst þetta ógnvekjandi þróun og eitthvað sem við verðum að tala um og gera eitthvað í. Þetta þarf ekki að vera svona. Númer eitt, tvö og þrjú verðum við að breyta innkaupakörfunni okkar og fara að breyta því hvað við setjum inn í líkamann okkar. Hvort sem það er öll þessi ruslfæða, orkudrykkir, snus-pokar, vape eða annað. Þetta er að drepa okkur. Spurningin er hvort og hvenær við ætlum að vakna upp úr dáleiðslunni sem við erum föst í.”

Forgangsröðun skiptir máli

Númi sér það oft í störfum sínum að fólk setur ekki heilsuna í forgang fyrr en það er orðið örvæntingarfullt. Hann veltir því upp hvort við getum ekki tekið ákvörðun um að forgangsraða heilsunni áður en allt er farið í óefni.

„Svo endum við flest á að átta okkur á því að við þurfum að koma okkur út í náttúruna, borða náttúrulegan mat og hægja á okkur. En því miður gerist það oft ekki fyrr en allt of seint. Hefur þú prófað að vera ekki með ristil? Eða vera með krabbamein? Þegar staðan er orðin þannig er mjög augljóst að það er bara eitt forgangsatriði og það er að ná heilsu. Við ættum að átta okkur á því að við eigum bara einn líkama og bara eina heilsu sem ætti í raun að vera alltaf í forgangi.“

Hægt er að nálgast viðtalið við Núma og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Vikan á Instagram – Skellti í sexí og sjóðandi sturtumyndband

Vikan á Instagram – Skellti í sexí og sjóðandi sturtumyndband
Fókus
Í gær

Tímavélin: Ástarævintýri endaði með morðsamsæri í Vestmannaeyjum

Tímavélin: Ástarævintýri endaði með morðsamsæri í Vestmannaeyjum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Modern Family-stjarna veitir sjaldséða innsýn í einkalífið eftir að hafa yfirgefið Hollywood

Modern Family-stjarna veitir sjaldséða innsýn í einkalífið eftir að hafa yfirgefið Hollywood
Fókus
Fyrir 4 dögum

Embla Wigum gengin út – Sýndi þeim heppna landið

Embla Wigum gengin út – Sýndi þeim heppna landið