fbpx
Sunnudagur 06.október 2024
Fókus

Segja stefna í skilnað og harða forsjárdeilu hjá hertogahjónunum

Fókus
Sunnudaginn 6. október 2024 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sérfræðingar telja að hjónaband hertogahjónanna Harry og Meghan standi nú á brauðfótunum. Þau stefni hratt í átt að skilnaði og harðri forsjárdeilu vegna barna sinna tveggja.

Heimildarmaður sem mun þekkja til hjónanna deildi þessu með RadarOnline og sagði þau ekki hamingjusöm þessa daganna. Sérstaklega mun Harry vera ósáttur og við það að fá nóg af konu sinni.

„Hún er ekki að uppfylla þau loforð sem hún gaf honum og vinsældir þeirra hafa aldrei verið minni í Bretlandi sem og í Bandaríkjunum“

Fréttamaðurinn Nana Akua hjá GB News deildi svipuðum hugleiðingum. Hjónin hafi hreinlega vaxið í stundur þar sem áherslur þeirra fara nú illa saman.

„Meghan ætlar sér að verða alþjóðleg stórstjarna og ég sé hana ekki fyrir mér snúa aftur til föðurlands Harry, sem hún hatar, sjálfviljug.“

New York Post segir að Harry sé verulega óánægður með óvinsældir sínar. Hann sé að missa fræga vini og allar tilraunir hans til að bæta ímynd sína hafi farið út um þúfur. Hann sé þó enn að reyna og hafi undanfarið mætt á marga viðburði bæði í Bandaríkjunum og í Bretlandi, þá alltaf án eiginkonu sinnar.

Mögulega trúi prinsinn að hann eigi enga von á að endurheimta gott mannorð með Meghan sér við hlið. Hann sé því að nýta tímann núna til að fá smá rými frá henni og velta fyrir sér hvernig framtíð hans lítur út, og hvort Meghan sé þar með honum eða ekki.

Margir ráku eins upp stór augu þegar Harry fagnaði 40 ára afmæli sínu og hvergi sást til Meghan. Þær skýringar hafa þó verið gefnar að Meghan hafi skipulagt fögnuðinn fyrir mann sinn og svo setið heima með börn þeirra, því þau eru of ung til að vera skilin eftir ein. Þær skýringar þótti þó ósannfærandi í ljósi þess að hjónin eru með heilt starfslið á sínum snærum og þar með talið nokkra aðila sem sérstaklega eru ráðnir til að aðstoða þau með börnin.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Lét föður sinn bera fram hetið á öllum stöðunum sem þeir heimsóttu á Íslandi

Lét föður sinn bera fram hetið á öllum stöðunum sem þeir heimsóttu á Íslandi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Erna gekk á milli lækna með mikla verki – „Þegar ég fékk loksins að fara í myndatöku þá er ég með handbolta í maganum“

Erna gekk á milli lækna með mikla verki – „Þegar ég fékk loksins að fara í myndatöku þá er ég með handbolta í maganum“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég var 6 ára þegar ég fór í partý hjá Diddy og þetta sá ég“

„Ég var 6 ára þegar ég fór í partý hjá Diddy og þetta sá ég“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Bresku krúttmolarnir eru mættir aftur og fóru á fund ráðherra – „Manni hlýnar um hjartarætur við að heyra sögur sem þessar“

Bresku krúttmolarnir eru mættir aftur og fóru á fund ráðherra – „Manni hlýnar um hjartarætur við að heyra sögur sem þessar“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dóttir R. Kelly afhjúpar hræðilegt leyndarmál sem eyðilagði æsku hennar

Dóttir R. Kelly afhjúpar hræðilegt leyndarmál sem eyðilagði æsku hennar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórleikaranum ofbauð þegar hann mætti í partý hjá P. Diddy

Stórleikaranum ofbauð þegar hann mætti í partý hjá P. Diddy
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fólk heldur að hún sé heimavinnandi húsmóðir – „Ég þéna 270 þúsund krónur á viku á „nuddstofu““

Fólk heldur að hún sé heimavinnandi húsmóðir – „Ég þéna 270 þúsund krónur á viku á „nuddstofu““
Fókus
Fyrir 4 dögum

Michael Schumacher sást opinberlega í fyrsta sinn í rúman áratug

Michael Schumacher sást opinberlega í fyrsta sinn í rúman áratug