Tónlistarmaðurinn Patrik Snær Atlason gaf út lagið Stjörnustælar á miðnætti. Lagið er innblásið af gagnrýnendum hans og fólki sem er virkt í athugasemdum.
Patrik Snær, sem kom inn í tónlistariðnaðinn undir nafninu Prettyboitjokko, ræddi lagið og myndband þess sem kemur út í dag í viðtali í Ísland vaknar á K100 í gær.
Segir hann Prettyboitjokko vera alteregó sitt sem geri alls konar bull og vitleysu sem Patrik Snær þarf að taka á og svara fyrir.
„Það er myndband sem kemur út á morgun [í dag, föstudaginn 4. október] þar sem ég er að kenna Prettyboitjokko um þetta allt. Þetta er „alteregóið“. Prettyboitjokko tekur yfir, segir alls konar rugl og gerir alls konar bull og svo þarf Patrik alltaf að díla við það. En án hans gæti ég þetta ekkert. Verið með þessa stjörnustæla. Verið upp á sviði ber að ofan, og verið með þetta „attitude“. Þannig að ég þarf á honum að halda en hann kemur mér líka í vandræði.“
View this post on Instagram
View this post on Instagram
Segist Patrik Snær hafa fengið fjandsamlegar athugasemdir á netinu og einnig úti á götu, þar sem hann hefur til að mynda verið axlaður.
Segir hann að þrátt fyrir að hann hafi gaman af þessu liði komi inn á milli tilvik þar sem hann tekur ákveðnar athugasemdir inn á sig.
„Ég og Gústi B vinur minn köllum þetta „hostile crowd“. Þá svona stara þau mann niður, og ég hef verið axlaður og eitthvað. Þau kannski fussa þegar þau sjá mig. Þetta er skemmtileg orka. Maður var kannski meira í þessari orku þegar maður var ennþá að drekka og maður var niðri í bæ. Þessi hrútaorka. Út með kassann. Mér finnst svo fyndið þegar fullorðnir menn eru ennþá í þessu.“
Hann segir kærustuna ekki hrifna af kjaftasögum tengdum honum, en þær séu mjög margar sem rati ekki í fjölmiðla.
„Það hefur samt minnkað. Mér finnst Gústi B hafa tekið við. Það pirrar mig stundum. Hvað, ertu ekki að slúðra um mig eða? Gústi B að fá alllan hitann.“
Í Stjörnustælar syngur Patrik Snær meðal annars um „skotmarkið á PBT“, sem hann segir fylgja því að koma inn í tónlistarheiminn „með hausinn á undan og rífandi kjaft,“ svo ekki sé talað um að fyrstu myndirnar af honum í fjölmiðlum voru eins konar nektarmyndir.
„Ég get alveg sjálfum mér um kennt – eða ekki sjálfum mér heldur Prettiboitjokko!“