Mikið hefur verið rætt og ritað um hegðun tónlistarmannsins að undanförnu, en hann hefur sem kunnugt er verið ákærður fyrir kynferðisbrot, mansal og kynlífsþrælkun. Hafa margar konur stigið fram og sakað hann um brot gegn sér. Er hann meðal annars sagður hafa þvingað konur og kynlífsverkafólk til að taka þátt í kynsvalli sem hann hélt fyrir nafntogaða einstaklinga.
Denzel, sem er orðinn 69 ára, var boðið í partý til P. Diddy árið 2003 og segir heimildarmaður Us Weekly að honum hafi ofboðið framkoma rapparans í partýinu.
„Denzel öskraði á hann: „Þú berð ekki virðingu fyrir neinum“,“ segir heimildarmaðurinn að Denzel hafi sagt en hann var staddur í gleðskapnum sem stóð langt fram á morgun ásamt eiginkonu sinni, Paulettu Pearson.
„Þau höfðu séð eitthvað gerast sem þau voru ekki hrifin af og ruku út,“ segir heimildarmaður Us Weekly.
Ekki liggur fyrir hvað það var sem Denzel og eiginkona hans sáu en ýmislegt virðist hafa gengið á í partíunum sem P. Diddy hélt. Hefur til dæmis verið fullyrt að kynsvall hafi verið stundað í herbergjum í glæsivillu rapparans þar sem kynlífsverkafólk fékk örvandi fíkniefni til að halda partýinu gangandi.
Þá er fræg sagan af því þegar mörg hundruð lítrar af barnaolíu fundust á heimili hans. Mun rapparinn hafa þurft að greiða stórfé til að borga fyrir þrif á sófum og rúmum á ónefndu hóteli eftir að allt var löðrandi í olíu eftir einn gleðskapinn. Gengu partýin undir nafninu „freak-offs“.