Upptaka af Þingvallagöngu með Guðna Ágústssyni er nú aðgengileg í spilaranum hér að neðan,inni á hringbraut.is eða á Hringbrautarrásinni í Sjónvarpi Símans.
Gangan er liður í viðburðaröðinni Fimmtudagskvöld á Þingvöllum, en að þessu sinni fáum við að upplifa Njálssögu i flutningi samtímamanns.
Í göngunni flytur Lilja Dögg Alfreðsdóttir Menningar- og viðskiptaráðherra ávarp, Ólafía Hrönn Jónsdóttir flytur Gunnars-hólma auk þess sem Karlakórinn Öðlingarnir úr Rangárvallasýslu syngja Skarphéðinn í brennunni og fleiri lög.
Gangan var gengin 22. júní 2023.