Íslendingum finnst vanalega ekki leiðinlegt þegar erlendar stórstjörnur gera sér ferð um að koma hingað upp á Frón til að skemmta landanum. Það má segja að þetta hafi byrjað fyrir alvöru í kringum árið 1970 þegar hljómsveitir á borð við Led Zeppelin og The Kinks tróðu upp í Laugardalshöll og máttu landsmenn venjast því að fá eitt, tvö eða þrjú stór atriði á ári. Það er fyrir utan tónleikahátíðir á borð við Secret Solstice og Iceland Airwaves.
Árið 2004 sker sig hins vegar úr þegar það var hreinlega ekki þverfótað fyrir rokk og poppstjörnum í Laugardalshöll, Kaplakrika, Egilshöll og fleiri stöðum. DV taldi meira en 20 stór atriði frá apríl fram í desember þetta ár.
Sugababes í Laugardalshöll – 8. apríl
Breska stúlknasveitin byrjaði árið með stæl. Þetta voru sennilega þeir tónleikar sem glöddu yngstu kynslóðina hvað mest. Það var þó pínu bömmer að þær skildu hafa setið á barstólum og sungið í stað þess að sprikla á sviðinu.
Kraftwerk í Kaplakrika – 5. maí
Miðasalan gekk illa á tónleika þýsku raftónlistarmannanna. Brugðið var á það ráð að veita fólki sem keypti miðana forkaups rétt á tónleika The Pixies seinna í mánuðinum. Tap var á tónleikunum og Kraftwerk liðar vorkenndu tónleikarahöldurnum svo að þeir gáfu eftir hluta af launum sínum.
The Pixies í Kaplakrika – 25. og 26. maí
Mikil eftirvænting var fyrir bandarísku rokksveitinni The Pixies sem höfðu ekki spilað á tónleikum í tíu ár. Það var gamall draumur Frank Black og félaga að heimsækja klakann og aftur komu þau árið 2014.
KoRn og Fantomas í Laugardalshöll – 30. og 31. maí
Númetal kóngarnir í KoRn áttu ekki í erfiðleikum með að fylla höllina þannig að blásið var til aukatónleika. „Ég hef aldrei séð betri rokksveit á sviði,“ sagði Birgir Örn Steinarsson í Fréttablaðinu.
Kris Kristoffersson í Laugardalshöll – 14. júní
Ekki er algengt að country stjörnur komi til landsins en ein af þeim stærstu, Kris Kristoffersson, kom til landsins og hélt tónleika þetta árið. KK og Ríó Tríó sáu um upphitunina. Sérkröfur Kristoffersson um mikið magn ávaxta vakti athygli.
Deep Purple í Laugardalshöll – 23. og 24. júní
Breska risasveitin Deep Purple hafði spilað í Laugardalshöll á hátindi frægðar sinnar árið 1971. Þrír af sömu meðlimum komu aftur 33 árum seinna, það er Ian Gillan, Roger Glover og Ian Paice.
Metallica í Egilshöll – 4. júlí
Laugardalshöllin var ekki nógu stór fyrir stærstu þungarokkshljómsveit heims. Egilshöll var leigð og 18 þúsund manns mættu. Umferðarstappan í Grafarvoginum var mörgum eftirminnileg.
Placebo í Laugardalshöll – 7. júlí
Það var ágætlega mætt á tónleika bresku rokksveitarinnar sem Maus hitaði upp fyrir. Tæknivandamál og almennt stemningsleysi settu hins vegar strik í reikninginn.
Pink í Laugardalshöll – 10. ágúst
Um 5 þúsund manns sáu poppstjörnuna ungu og voru tónleikarnir mikið sjónarspil. Pink hélt 300 manna eftirpartí á skemmtistaðnum Felix og sögusagnir voru um að hún hefði slegið sér upp með skemmtanastjóranum á 22, Ágústi Aðalsteinssyni. „Þetta er bara hress stelpa,“ sagði Ágúst við DV á sínum tíma. Aukatónleikar Pink þann 11. ágúst voru blásnir af.
50 Cent í Laugardalshöll – 11. ágúst
Tónleikar bandaríska rapparans 50 Cent áttu upphaflega að fara fram í Egilshöll eins og Metallica þar sem búist var við mikilli aðsókn. Það reyndist hins vegar ekki raunin og voru tónleikarnir að lokum færðir í Laugardalshöllina.
Lou Reed í Laugardalshöll – 20. ágúst
Gamla Velvet Underground kempan kom og tók gott úrval af öllum ferlinum. Voru þetta frekar langir tónleikar og í rólegri kantinum.
James Brown í Laugardalshöll – 28. ágúst
Fullt hús var þegar sálarkóngurinn James Brown mætti með stórum hópi tónlistarfólks. Að sögn Morgunblaðsins var varla sála sem sat í sæti sínu á tónleikunum. Það hafi hins vegar valdið vonbrigðum að Brown hafi ekki tekið nein uppklappslög.
Scooter í Laugardalshöll – 25. september
Þýska reif sveitin hefur margsinnis komið á klakann og skemmt þeim dansþurfi. Árið 2004 var engin undantekning.
Van Morrison í Laugardalshöll – 2. október
Norður Írinn Van Morrison á marga spaða upp í erminni og til Íslands mætti hann með mikið brass-band. Þrátt fyrir að eiga marga hittara á sínum yngri árum ákvað hann að spila að mestu leyti nýrra efni.
The Prodigy í Laugardalshöll – 15. október
Ef einhver sveit á skilið að vera kölluð Íslandsvinir þá er það breska raftónlistarsveitin The Prodigy. Á þrjátíu árum hefur sveitin komið margoft á klakann og spilað á stórum sviðum sem smáum og tveimur tónlistarhátíðum.
The Beach Boys í Laugardalshöll – 21. nóvember
Höllin var troðfull þegar „Hinir amerísku Bítlar“ sýndu listir sínar, klæddir í litríkar skyrtur en með aðeins stærri bumbur enn á gullaldarárunum.
Annað
Damien Rice á NASA – 23. september
Keane í Hafnarhúsinu – 23. Október
Marianne Faithful á Broadway – 11. nóvember
The Stranglers í Smáranum – 4. desember